1Bel er hokinn, Nebó er boginn. Líkneski þeirra eru fengin eykjum og gripum, goðalíkneskin, sem þér áður báruð um kring, eru nú látin upp á þreyttan eyk, eins og önnur byrði.2Þeir eru bæði bognir og hoknir. Þeir megna ekki að frelsa byrðina, og sjálfir hljóta þeir að fara í útlegð.3Hlýðið á mig, þér kynsmenn Jakobs, og allir þér, sem eftir eruð af kyni Ísraels, þér sem eruð mér á herðar lagðir allt í frá móðurkviði og ég hefi borið allt í frá móðurlífi:4Allt til elliára er ég hinn sami, og ég vil bera yður, þar til er þér verðið gráir fyrir hærum. Ég hefi gjört yður, og ég skal bera yður, ég skal bera yður og frelsa.5Við hvern viljið þér samlíkja mér og jafna mér? Saman við hvern viljið þér bera mig sem jafningja minn?6Þeir sem steypa gullinu úr sjóðnum og vega silfrið á vogarskálum, leigja sér gullsmið til að smíða úr því guð, síðan knékrjúpa þeir og falla fram.7Þeir lyfta honum á axlir sér, bera hann og setja hann á sinn stað, og þar stendur hann og víkur ekki úr stað. Og þótt einhver ákalli hann, þá svarar hann ekki, hann frelsar eigi úr nauðum.8Minnist þessa og látið yður segjast, leggið það á hjarta, þér trúrofar.9Minnist þess hins fyrra frá upphafi, að ég er Guð og enginn annar, hinn sanni Guð og enginn minn líki.10Ég kunngjörði endalokin frá öndverðu og sagði fyrir fram það, sem eigi var enn fram komið. Ég segi: Mín ráðsályktun stendur stöðug, og allt, sem mér vel líkar, framkvæmi ég.11Ég kalla örninn úr austurátt, úr fjarlægu landi mann þann, er framkvæmir ráðsályktun mína. Það sem ég tala, það læt ég einnig fram koma, það sem ég áset mér, það gjöri ég einnig.12Hlýðið á mig, þér harðsvíruðu, sem eruð fjarlægir réttlætinu!13Ég nálægi mitt réttlæti, það er ekki langt í burtu, og hjálp mín skal ekki dvelja. Ég veiti hjálp í Síon og vegsemd mína Ísrael.

46.1 Bel Jer 51.44; VDan 2; BJer 40
46.2 Í útlegð Jer 43.12; 48.7
46.3 Sem eftir eruð Jes 4.3+ ; Am 5.15 – frá fæðingu Jes 44.2+
46.4 Til elliára Slm 71.18
46.5 Líkja Jes 40.18+
46.6 Skurðgoð Jes 40.19+
46.7 Fánýt goð Slm 115.5-7+ – hreyfir sig ekki Jes 41.7 – svarar ekki 1Kon 18.26-29; Jer 10.5 – frelsar ekki Jes 45.20
46.8 Minnist Jes 44.21
46.9 Sem áður var Jes 43.18; sbr Jes 42.9+ – enginn annar Jes 44.6+
46.10 Frá öndverðu Jes 40.21+ ; sbr Jes 44.8+ ; 45.21 – skýrt frá Jes 41.22+ – ákvörðun Jes 5.19; 14.26-27; 19.17; 44.26; Ef 1.11 – geri Jes 44.28; Slm 33.11; sbr Jes 53.10
46.11 Mann Jes 40.13+
46.13 Færi Jes 51.5 – réttlæti og hjálp Jes 45.8+