1Þegar Jesús hafði mælt þessum orðum, fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar.2Fjöldi manna fylgdi honum, og þar læknaði hann þá.3Þá komu til hans farísear og vildu freista hans. Þeir spurðu: Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?4Hann svaraði: Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu5og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.6Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.7Þeir segja við hann: Hvers vegna bauð þá Móse að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?8Hann svarar: Vegna harðúðar hjartna yðar leyfði Móse yður að skilja við konur yðar, en frá upphafi var þetta eigi þannig.9Ég segi yður: Sá sem skilur við konu sína nema sakir hórdóms og kvænist annarri, drýgir hór.10Þá sögðu lærisveinar hans: Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast.11Hann svaraði þeim: Þetta er ekki á allra færi, heldur þeirra einna, sem það er gefið.12Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, sumir eru vanhæfir gjörðir af manna völdum, sumir hafa sjálfir gjört sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli, sem höndlað fær.13Þá færðu menn til hans börn, að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim, en lærisveinar hans átöldu þá.14En Jesús sagði: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er himnaríki.15Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.16Þá kom til hans maður og spurði: Meistari, hvað gott á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?17Jesús sagði við hann: Hví spyr þú mig um hið góða? Einn er sá hinn góði. Ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá haltu boðorðin.18Hann spurði: Hver? Jesús sagði: Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni,19heiðra föður þinn og móður, og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.20Þá sagði ungi maðurinn: Alls þessa hef ég gætt. Hvers er mér enn vant?21Jesús sagði við hann: Ef þú vilt vera fullkominn, skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan, og fylg mér.22Þegar ungi maðurinn heyrði þessi orð, fór hann brott hryggur, enda átti hann miklar eignir.23En Jesús sagði við lærisveina sína: Sannlega segi ég yður: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki.24Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.25Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, urðu þeir steini lostnir og sögðu: Hver getur þá orðið hólpinn?26Jesús horfði á þá og sagði: Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en Guð megnar allt.27Þá sagði Pétur við hann: Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum vér hljóta?28Jesús sagði við þá: Sannlega segi ég yður: Þegar allt er orðið endurfætt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu, munuð þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.29Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá margfalt aftur og öðlast eilíft líf.30En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.

19.1-12 Hlst. Mrk 10.1-12
19.1 Að loknu máli Matt 7.28+
19.3 Jesú freistað Matt 16.1+
19.4 Karl og kona 1Mós 1.27; 5.2
19.5 Sbr 1Mós 2.24; 1Kor 6.16; Ef 5.31
19.7 Skilnaðarbréf 5Mós 24.1; Matt 5.31
19.9 Skilja 1Kor 7.10-11 – hórdómur sbr Matt 5.32+
19.10 Kvænast ekki 1Kor 7.1-2,7-9
19.11 … sem það er gefið 1Kor 7.17
19.12 Sá höndli, sem höndlað fær Matt 11.15; 13.9
19.13-15 Hlst. Mrk 10.13-16; Lúk 18.15-17
19.13 Börn Matt 18.2+
19.15 Leggja hendur yfir Matt 9.18+
19.16-30 Hlst. Mrk 10.17-31; Lúk 18.18-30
19.16 Eilíft líf Matt 18.8+ ; Lúk 10.25
19.17 Halda boðorðin 3Mós 18.5; Lúk 10.28
19.18-19 Boðorð Guðs 2Mós 20.12-17; 5Mós 5.16-21; sbr Róm 13.9 – náungi þinn 3Mós 19.18; Matt 5.43; 22.39; Lúk 10.27; Róm 13.9
19.21 Fullkominn Matt 5.48 – selja og gefa Mrk 14.5; Lúk 12.23; Jóh 12.5; Post 2.45; 4.34-37 – fjársjóður á himnum Matt 6.20; Kól 3.1-2
19.23 Auðmaður Lúk 6.24; 12.16; 16.19-31; Jak 1.10-11; 5.1-6; Opb 3.17 – ganga inn í himnaríki Matt 5.20+
19.26 Guði er ekkert um megn 1Mós 18.14; Jer 32.17; Job 42.2
19.27 Pétur Matt 4.18+
19.28 Mannssonurinn Matt 8.20+ – hásæti hans sbr Dan 7.9-10,14 – lærisveinar dæma Matt 20.21 og hlst.; Lúk 22.30; 1Kor 6.2; sbr Opb 3.21; 20.4
19.29 Eilíft líf Matt 18.8+ ; Lúk 10.25
19.30 Fyrstir og síðastir Matt 20.16; Lúk 13.30; Mrk 10.31; Lúk 13.30