1Meðan Ísrael dvaldi í Sittím, tók lýðurinn að drýgja hór með Móabs dætrum.2Buðu þær lýðnum til fórnarmáltíða goða sinna, og lýðurinn át og tilbað goð þeirra.3Og Ísrael hafði mök við Baal Peór. Upptendraðist þá reiði Drottins gegn Ísrael.4Drottinn sagði við Móse: Tak með þér alla höfðingja lýðsins og líflát þá úti undir berum himni fyrir Drottni, svo að hin ákafa reiði Drottins hverfi í brott frá Ísrael.5Móse sagði þá við dómarana í Ísrael: Drepi nú hver um sig þá af sínum mönnum, er mök hafa haft við Baal Peór.6Sjá, einn af Ísraelsmönnum kom og hafði með sér midíanska konu til bræðra sinna í augsýn Móse og alls safnaðar Ísraelsmanna, er þeir voru grátandi fyrir dyrum samfundatjaldsins.7En er Pínehas, sonur Eleasars Aronssonar prests, sá það, gekk hann fram úr söfnuðinum og tók spjót í hönd sér.8Fór hann á eftir Ísraelsmanninum inn í svefnhýsið og lagði þau bæði í gegn, Ísraelsmanninn og konuna, gegnum kviðinn. Staðnaði þá plágan meðal Ísraelsmanna.9En þeir sem dóu í plágunni, voru tuttugu og fjórar þúsundir.10Drottinn talaði við Móse og sagði:11Pínehas, sonur Eleasars Aronssonar prests, hefir bægt reiði minni frá Ísraelsmönnum með því að vandlæta meðal þeirra með mínu vandlæti. Hefi ég því eigi gjöreytt Ísraelsmönnum í vandlæti mínu.12Seg því: Sjá, ég gef honum minn friðarsáttmála.13Hann og niðjar hans eftir hann skulu hljóta sáttmála ævarandi prestdóms fyrir það, að hann vandlætti vegna Guðs síns og friðþægði fyrir Ísraelsmenn.14Hinn vegni Ísraelsmaður, sá er veginn var ásamt midíönsku konunni, hét Simrí Salúson. Var hann höfðingi eins ættleggs meðal Símeoníta.15Og midíanska konan, sem vegin var, hét Kosbí Súrsdóttir, en hann var höfðingi yfir ættstofni einum í Midían.16Og Drottinn talaði við Móse og sagði: Kreppið að Midíansmönnum og fellið þá, 18því að þeir hafa komið yður í krappan stað með brögðum þeim, er þeir beittu yður, bæði að því er snertir dýrkun Peórs og systur þeirra, Kosbí, dóttur midíanska höfðingjans, hennar sem vegin var, þá er plágan reið yfir sökum dýrkunar Peórs.

25.1-5 Baal Peór 4Mós 31.16; 5Mós 3.29; 4.3; Slm 106.28-31; Opb 2.14
25.2 Áhrif kvenna 5Mós 7.3-4; 1Kon 11.4; Okv 5
25.9 24.000 sbr 1Kor 10.8
25.11 Pínehas afbrýðisamur Sír 45.23; sbr 1Kon 19.10,14; Sír 48.1-2
25.13 Laun Pínehasar sbr 2Mós 32.25-29