1Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni.2Álítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir.3Þér vitið, að trúarstaðfesta yðar vekur þolgæði,4en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavant.5Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast.6En hann biðji í trú, án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi.7Sá maður, tvílyndur og reikull á öllum vegum sínum, má eigi ætla,8að hann fái nokkuð hjá Drottni.9Lágt settur bróðir hrósi sér af upphefð sinni,10en auðugur af lægingu sinni, því hann mun líða undir lok eins og blóm á engi.11Sólin kemur upp með steikjandi hita og brennir grasið, og blóm þess dettur af og fegurð þess verður að engu. Þannig mun og hinn auðugi maður visna upp á vegum sínum.12Sæll er sá maður, sem stenst freistingu, því að þegar hann hefur reynst hæfur mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefur heitið þeim er elska hann.13Enginn má segja, er hann verður fyrir freistingu: Guð freistar mín. Guð getur eigi orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálfur einskis manns.14Það er eigin girnd, sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir.15Þegar girndin síðan er orðin þunguð, elur hún synd, og þegar syndin er orðin fullþroskuð, fæðir hún dauða.16Villist ekki, bræður mínir elskaðir!17Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að og kemur niður frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né skuggar, sem koma og fara.18Eftir ráðsályktun sinni fæddi hann oss með orði sannleikans, til þess að vér skyldum vera frumgróði sköpunar hans.19Vitið, bræður mínir elskaðir: Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði.20Því að reiði manns ávinnur ekki það, sem rétt er fyrir Guði.21Leggið því af hvers konar saurugleik og alla vonsku og takið með hógværð á móti hinu gróðursetta orði, er frelsað getur sálir yðar.22Verðið gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þér sjálfa yður.23Því að ef einhver er heyrandi orðsins og ekki gjörandi, þá er hann líkur manni, er skoðar andlit sitt í spegli.24Hann skoðar sjálfan sig, fer burt og gleymir jafnskjótt, hvernig hann var.25En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því, sem hann heyrir, heldur framkvæmir það, hann mun sæll verða í verkum sínum.26Sá sem þykist vera guðrækinn, en hefur ekki taumhald á tungu sinni, blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt.27Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og föður er þetta, að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.

1.1 Jakob sbr Post 15.13+ – þjónn Jesú Krists Róm 1.1; Fil 1.1; 2Pét 1.1; Júd 1 – Drottinn Jesú Kristur Jak 2.1; 5.14-15 – í dreifingunni Post 15.23; 1Pét 1.1 – tólf kynkvíslir Matt 19.28; Post 26.7
1.2 Raunir Róm 5.3-5; Jak 1.12; 1Pét 1.6
1.3 Trúfesti 1Pét 1.7 – raunir og þolgæði Jak 1.12; 5.11; sbr Lúk 8.13-15
1.4 Fullkomin Jak 1.17,25; 2.22; 3.2; sbr Mtt 5.48; 19.21
1.5 Viska Jak 3.13 – biðja um visku Okv 2.3-6; sbr Jak 4.2-3 – örlátlega Róm 12.8; 2Kor 11.3; Kól 3.22
1.6 Biðja í trú Matt 7.7; Mrk 11.24
1.8 Tvílyndur Jak 4.8
1.9 Lágt settur sbr 1Kor 1.26-29; 11.21-22; Jak 2.1-7; 5.1-6
1.10-11 Visna sem blóm Slm 102.5,12; Jes 40.6-8; 1Pét 1.24
1.12 Sæll Matt 5.3+ ; Lúk 6.20+ ; 12.37-38; sbr Jak 1.25; 5.11 – kóróna lífsins 1Kor 9.25+ ; Fil 4.1
1.13 Guð freistar einskis Sír 15.11-13
1.14 Eigin girnd Róm 7.7-8; 1Jóh 2.16-17
1.15 Synd Jak 2.9; 4.17; 5.15-16 – dauði Jak 5.20; sbr Róm 5.12; 6.23; 7.13
1.17 Sérhver góð gjöf Matt 7.11 – faðirinn Jak 1.27; 3.9 – faðir ljósanna sbr 1Mós 1.3,14-18; 1Jóh 1.5
1.18 Vekja oss til lífs Jóh 1.13 – með orði sannleikans 1Pét 1.23-25; sbr Ef 1.13; Kól 1.5; 2Tím 2.15; Jak 3.14; 5.19
1.19 Fljótur að heyra, seinn til að tala Sír 5.11 – seinn til reiði sbr 2Mós 34.6; Préd 7.9
1.20 Rétt í augum Guðs Jak 2.21-25; 3.18; 5.16; sbr Matt 5.6,10,20; 6.33
1.21 Leggið af … Ef 4.22,25; Kól 3.8; 1Pét 2.1; sbr Róm 13.12; Heb 12.1
1.22 Gerendur orðsins Matt 7.24; Róm 2.13
1.25 Lögmál frelsisins Róm 8.2; Gal 6.2; Jak 2.12; 1Pét 2.16 – framkvæma sbr Jak 2.14 – sæll í verkum sínum Jóh 13.17
1.26 Taumhald á tungu sinni Slm 34.14; 39.2; 141.3
1.27 Hrein og flekklaus guðrækni Jes 1.11-17,23; Jer 5.28; Esk 22.7; Sak 7.10 – óflekkaður af heiminum sbr Jak 4.4