1Helgigönguljóð. Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,2Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist?4En hjá þér er fyrirgefning, svo að menn óttist þig.5Ég vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð ég.6Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.7Ó Ísrael, bíð þú Drottins, því að hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.8Hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.

130.1 Ákalla Drottinn Slm 3.5+
130.2 Hlusta á Slm 71.2+ ; Neh 1.6; 2Kro 6.40 – grátbeiðni mína Slm 5.3; 140.7
130.3 Hver fengi þá staðist? Slm 143.2
130.4 Óttast Drottinn Slm 25.12,14; 67.8; 72.5; 111.10; 112.1; Jes 8.13; 50.10; Okv 3.7; Préd 3.14; sbr Slm 15.4+
130.5 Vona á Drottinn Slm 27.14; 37.34; 40.2
130.6 Meir en vökumenn Jes 21.11 – þreyja Drottinn Jes 26.9
130.8 Leysa Ísrael Slm 25.22