1Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru, eins illa á sæmd við heimskan mann.2Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur, eins er um óverðskuldaða formæling hún verður eigi að áhrínsorðum.3Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum en vöndurinn baki heimskingjanna.4Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að þú verðir ekki honum jafn.5Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.6Sá höggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti, sem sendir orð með heimskingja.7Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.8Sá sem sýnir heimskum manni sæmd, honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngvu.9Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.10Eins og skytta, sem hæfir allt, svo er sá sem leigir heimskingja, og sá er leigir vegfarendur.11Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.12Sjáir þú mann, sem þykist vitur, þá er meiri von um heimskingja en hann.13Letinginn segir: Óargadýr er á veginum, ljón á götunum.14Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.15Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.16Latur maður þykist vitrari en sjö, sem svara hyggilega.17Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við, hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.18Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum, banvænum skeytum,19eins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn og segir síðan: Ég er bara að gjöra að gamni mínu.20Þegar eldsneytið þrýtur, slokknar eldurinn, og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.21Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.22Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.23Eldheitir kossar og illt hjarta, það er sem sorasilfur utan af leirbroti.24Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti, en í hjarta sínu hyggur hann á svik.25Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki, því að sjö andstyggðir eru í hjarta hans.26Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu.27Sá sem grefur gröf, fellur í hana, og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.28Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.

26.3 Vöndurinn Okv 13.24+
26.11 Til spýju sinnar 2Pét 2.22
26.13-16 Letingjinn Okv 6.6+
26.24-25 Fagurgali Okv 6.12-14; 12.22; Slm 35.19; Sír 27.22,23
26.27 Falla í eigin gröf Slm 7.16+ ; Sír 27.25-27; sbr Okv 5.22+