1Spádómur, sem opinberaður var Habakkuk spámanni.2Hversu lengi hefi ég kallað, Drottinn, og þú heyrir ekki! Hversu lengi hefi ég hrópað til þín: Ofríki! og þú hjálpar ekki!3Hví lætur þú mig sjá rangindi, hví horfir þú upp á rangsleitni? Eyðing og ofríki standa fyrir augum mér. Af því koma þrætur, og deilur rísa upp.4Fyrir því verður lögmálið magnlaust og fyrir því kemur rétturinn aldrei fram. Hinir óguðlegu umkringja hina réttlátu, fyrir því kemur rétturinn fram rangsnúinn.5Lítið upp, þér hinir sviksömu, og litist um! Fallið í stafi og undrist! Því að ég framkvæmi verk á yðar dögum þér munduð ekki trúa því, ef sagt væri frá því.6Sjá, ég reisi upp Kaldea, hina harðgjöru og ofsafullu þjóð, sem fer um víða veröld til þess að leggja undir sig bústaði, sem hún á ekki.7Ægileg og hræðileg er hún, frá henni sjálfri út gengur réttur hennar og tign.8Hestar hennar eru frárri en pardusdýr og skjótari en úlfar að kveldi dags. Riddarar hennar þeysa áfram, riddarar hennar koma langt að. Þeir fljúga áfram eins og örn, sem hraðar sér að æti.9Allir koma þeir til þess að fremja ofbeldisverk, brjótast beint áfram og raka saman herteknum mönnum eins og sandi.10Þeir gjöra gys að konungum, og höfðingjar eru þeim að hlátri. Þeir hlæja að öllum virkjum, hrúga upp mold og vinna þau.11Þeir fá nýjan kraft og brjótast áfram og gjörast brotlegir, þeir sem trúa á mátt sinn og megin.12Ert þú, Drottinn, ekki Guð minn frá öndverðu, minn Heilagi, sem aldrei deyr? Drottinn, þú hefir falið þeim að framkvæma dóm. Bjargið mitt, þú hefir sett þá til að refsa.13Augu þín eru of hrein til þess að líta hið illa, og þú getur ekki horft upp á rangsleitni. Hví horfir þú á svikarana, hví þegir þú, þegar hinn óguðlegi uppsvelgir þann, sem honum er réttlátari?14Og þannig hefir þú látið mennina verða eins og fiska sjávarins, eins og skriðkvikindin, sem engan drottnara hafa.15Þeir draga þá alla upp á öngli sínum, hrífa þá í net sitt og safna þeim í vörpu sína. Fyrir því gleðjast þeir og fagna,16fyrir því færa þeir neti sínu sláturfórn og vörpu sinni reykelsisfórn. Því að þau afla þeim ríkulegs hlutskiptis og ríflegs matar.17Fyrir því bregða þeir sverði sínu án afláts til þess að drepa þjóðir vægðarlaust.

1.1 Spádómur Jes 13.1+ ; vitrun Nah 1.1+
1.2 Ofbeldi Jer 20.8; Job 19.7 – kemur ekki til hjálpar Jer 14.9; Slm 22.2-3
1.3 Ofbeldi og rán Jer 6.7; Am 3.10; Slm 55.10-12
1.4 Rétturinn hundsaður Jes 59.14 – réttlátir, fórnarlömb illmenna (óguðlegra) Mík 7.2
1.5 Undrist Jes 29.9 – verk Guðs Jes 5.12
1.6 Ég magna upp … 2Kon 24.2-4; Jes 10.6; Jer 5.15-19; 25.9-11; 27.6-7; 51.20-23; Am 3.11
1.7 Ofdramb Jes 10.13
1.11 Trúa á mátt sinn Jes 10.13; Jer 17.5
1.12 Frá öndverður Slm 90.1-2; 93.2 – minn Heilagi Jes 1.4+ ; 6.3; Slm 22.4 – Guð er bjarg Slm 28.1
1.13 Um megn að horfa á illvirki Slm 5.5-6 – hví? Jer 12.1; 15.18; 20.18; Slm 10.1; 22.2; 42.10; Job 3.11-12,20; 7.20 o.áfr. – aðgerðaleysi Guðs Slm 22.3; 28.1
1.15 Net og veiðar, tákn um sigur Jer 16.16; Esk 12.13; 17.20