1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:2Nem staðar við hlið musteris Drottins og boða þar þessi orð og seg: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, þér sem gangið inn um þetta hlið til þess að falla fram fyrir Drottni.3Svo segir Drottinn allsherjar, Guð Ísraels: Bætið breytni yðar og gjörðir, þá mun ég láta yður búa á þessum stað.4Reiðið yður ekki á lygatal, er menn segja: Þetta er musteri Drottins, musteri Drottins, musteri Drottins.5En ef þér bætið breytni yðar og gjörðir alvarlega, ef þér iðkið réttlæti í þrætum manna á milli,6undirokið ekki útlendinga, munaðarleysingja og ekkjur, og úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað, og eltið ekki aðra guði, yður til tjóns,7þá vil ég láta yður búa á þessum stað, í landinu, sem ég gaf feðrum yðar, frá eilífð til eilífðar.8Sjá, þér reiðið yður á lygaræður, sem ekki eru til nokkurs gagns.9Er ekki svo: Stela, myrða, drýgja hór, sverja meinsæri, færa Baal reykelsisfórnir og elta aðra guði, er þér ekki þekkið,10og síðan komið þér og gangið fram fyrir mig í þessu húsi, sem kennt er við nafn mitt, og segið: Oss er borgið! og fremjið síðan að nýju allar þessar svívirðingar.11Er þá hús þetta, sem kennt er við nafn mitt, orðið að ræningjabæli í augum yðar? Já, ég lít svo á segir Drottinn.12Farið til bústaðar míns í Síló, þar sem ég forðum daga lét nafn mitt búa, og sjáið, hvernig ég hefi farið með hann fyrir sakir illsku lýðs míns Ísraels.13Og þar eð þér nú hafið framið öll þessi verk segir Drottinn og eigi hlýtt, þótt ég hafi talað til yðar seint og snemma, og eigi svarað, þótt ég hafi kallað á yður,14þá ætla ég að fara með húsið, sem kennt er við nafn mitt og þér treystið á, og staðinn, sem ég hefi gefið yður og feðrum yðar, eins og ég fór með Síló,15og útskúfa yður frá augliti mínu, eins og ég útskúfaði bræðrum yðar, öllum niðjum Efraíms.16Þú skalt ekki biðja fyrir þessum lýð og ekki hefja þeirra vegna grátbeiðni né fyrirbón, og legg ekki að mér, því að ég heyri þig ekki.17Sér þú ekki hvað þeir hafast að í Júdaborgum og á strætum Jerúsalem?18Börnin tína saman eldivið og feðurnir kveikja eldinn, en konurnar hnoða deig til þess að gjöra af fórnarkökur handa himnadrottningunni, og færa öðrum guðum dreypifórnir til þess að skaprauna mér.19En skaprauna þeir mér segir Drottinn, hvort ekki miklu fremur sjálfum sér, til þess að þeir verði sér herfilega til skammar?20Fyrir því segir herrann Drottinn svo: Reiði minni og heift mun úthellt verða yfir þennan stað, yfir menn og skepnur, yfir tré merkurinnar og yfir ávexti akurlendisins, og hún skal brenna og eigi slokkna.21Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Bætið brennifórnum yðar við sláturfórnir yðar og etið kjöt!22Því að ég hefi ekkert talað til feðra yðar né boðið þeim nokkuð um brennifórnir og sláturfórnir, þá er ég leiddi þá burt af Egyptalandi.23En þetta hefi ég boðið þeim: Hlýðið minni raustu, þá skal ég vera yðar Guð og þér skuluð vera mín þjóð, og gangið jafnan á þeim vegi, sem ég býð yður, til þess að yður vegni vel.24En þeir heyrðu ekki og lögðu ekki við eyrun, en fóru eftir vélráðum síns illa hjarta og sneru við mér bakinu, en ekki andlitinu.25Frá þeim degi, er feður yðar fóru burt af Egyptalandi, og fram á þennan dag, hefi ég stöðugt dag eftir dag sent þjóna mína, spámennina, til yðar.26En þeir heyrðu mig ekki og lögðu ekki við eyrun, heldur gjörðust harðsvíraðir og breyttu enn verr en feður þeirra.27Og þótt þú talir öll þessi orð til þeirra, munu þeir ekki hlýða á þig, og þótt þú kallir til þeirra, munu þeir ekki svara þér.28Seg því við þá: Þetta er þjóðin, sem eigi hlýðir raustu Drottins, Guðs síns, og engri umvöndun tekur. Horfin er trúfestin, já, upprætt úr munni þeirra.29Sker af þér höfuðprýði þína og varpa henni frá þér og hef upp harmakvein á skóglausu hæðunum, því að Drottinn hefir hafnað og útskúfað þeirri kynslóð, sem hann reiddist.30Júdamenn hafa gjört það, sem illt er í mínum augum segir Drottinn, þeir hafa reist upp viðurstyggðir sínar í húsi því, sem kennt er við nafn mitt, og saurgað það31og byggt Tófet-fórnarhæðir í Hinnomssonar-dal til þess að brenna sonu sína og dætur í eldi, sem ég hefi ekki boðið og mér hefir ekki í hug komið!32Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma segir Drottinn, að eigi mun framar verða talað um Tófet og Hinnomssonar-dal, heldur um Drápsdal, og menn munu jarða í Tófet vegna rúmleysis.33Lík þessa lýðs munu verða æti fyrir fugla himinsins og dýr jarðarinnar, og enginn mun fæla þau burt.34Þá mun ég láta öll ánægju- og gleðihljóð, öll fagnaðarlæti brúðguma og brúðar hverfa burt úr Júdaborgum og af strætum Jerúsalem, því að landið skal verða auðn.

7.3 Bætið breytni yðar Jer 18.11; 26.13 – búa hér Am 5.14
7.5 Iðka réttlæti Jer 5.1
7.6 Aðkomumenn, munaðarleysingjar og ekkjur sbr Jer 5.28; 22.3
7.7 Landið Jer 3.18; Am 9.15
7.8 Lygaræður Jer 13.25
7.9 Stela, myrða … Hós 4.2 – fórna til Baals Jer 1.16+ – elta aðra guði Jer 11.10; 13.10; 16.11; 25.6; 35.15; 44.3; 5Mós 6.14
7.10 Fram fyrir auglit mitt Mík 6.6-8; Slm 15; 24.3-6; sbr Jer 15.19; 35.18,19 – kennt við nafn mitt Jer 7.14,30; 32.34; 34.15; 5Mós 12.5,11; Bar 2.26; sbr Jer 25.29; 1Kon 8.43
7.11 Ræningjabæli Matt 21.13
7.12 Síló Jer 26.9; 1Sam 1.3; 3.21; 4.3; Slm 78.60 – lét nafn mitt búa 5Mós 12.11; 14.23; 16.2,6,11; 26.2; Neh 1.9
7.13 Ég talaði Jer 7.25-26; 35.17; 36.31; 37.2; Jes 50.2; 65.12
7.14 Eyðing musterisins 1Kon 9.7
7.15 Reka yður frá Jer 23.39 – niðjar Efraíms 2Kon 17.7-18
7.16 Biðja fyrir Jer 15.1,11; 18.20; 27.18; 37.3; 42.2,4; 2Mós 32.11; 5Mós 9.18; 1Kon 13.6; 2Kon 19.4; Esk 9.8; Am 7.2,5; Dan 9.15-19; 2Makk 15.14 – ekki biðja Jer 11.14; 14.11
7.18 Drottning himinsins Jer 44.17-19 – færa fórnir Jer 19.13 – skaprauna Drottni Jer 8.19; 11.17; 25.6
7.20 Reiði og heift Jer 32.31; 33.5; 36.7; 42.18; 44.6 – ekki slokkna Jer 17.27; 2Kon 22.17
7.21 Hlaðið brennifórnum … Jer 6.20; sbr Am 4.4-5
7.22 Út úr Egyptalandi 2Mós 12.37-15.21; Jes 11.16; Hós 11.1; 12.10,14; 13.4; Slm 78.12-14; 80.9; 114.1; 135.8-9; 136.10-15 – ekki gefið fyrirmæli um fórnir Jes 1.11; Am 5.25; Slm 51.18; Post 7.42-43; sbr Hós 6.6; Mík 6.8
7.23 Hlýðið boðum mínum 2Mós 19.5; 5Mós 6.3; 26.17 – Guð yðar … þjóð mín Jer 11.4; 24.7; 30.22; 31.1,33; 32.38; 2Mós 6.7; 3Mós 26.12; 5Mós 29.12; 2Kon 11.17; Esk 11.20; 14.11; 36.28; 37.23,27; Hós 2.25; Sak 8.8; 13.9; 2Kor 6.16; Heb 8.10; sbr 2Mós 19.5
7.24 Illt hjarta Jer 3.17+
7.25 Frá þeim degi … Jer 2.20; 2Kon 21.15 – þjónar mínir, spámennirnir Jer 25.4; 26.5; 29.19; 35.15
7.26 Þeir hlustuðu ekki Jer 11.8; 13.10; 34.14; 35.15; sbr 22.21 – gerðust harðsvíraðir Jer 17.23; 19.15; 5Mós 10.16; 2Kon 17.14; Post 7.51
7.28 Óhlýðin þjóð Jer 42.13,21; sbr Matt 21.43 – hlýðir ekki leiðsögn Jer 6.8+
7.29 Lokkar Dóm 13.5-7; 16.17; 1Sam 1.11
7.30 Viðurstyggilegar Jer 4.1+ – í musterinu Jer 32.34-35
7.31 Fórnarhæðir Jer 19.5; 32.35; 1Kon 3.2; 11.7; 14.23; 15.14; 2Kon 12.4; 14.4; 15.4,35; 17.9,11; Esk 16.25, 20.29; Hós 10.8, Am 7.9; Mík 1.5; Slm 78.58 – Tófet Jer 19.6-14; 2Kon 23.10 – Hinnonssonardalur Jer 2.23+ – brenna börn sín Jer 19.5; 22.3; 5Mós 18.10; 2Kon 16.3; 17.17; 21.6; Slm 106.38
7.32 Dápsdalur Jer 19.6 – grafnir Esk 6.5
7.33 Æti handa rándýrum Jer 12.9; 16.4; 19.7; 34.20; 5Mós 28.26; Slm 79.2-3 – fæla burt 2Sam 21.10
7.34 Þagga niður í fagnaðarlátum Jer 16.9; Bar 2.23; Opb 18.23