1Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar.2Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn.3Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf.4Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú.5Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir.6Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri.7Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu,8sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: Farið og búið til páskamáltíðar fyrir oss.9Þeir sögðu við hann: Hvar vilt þú, að við búum hana?10En hann sagði við þá: Þegar þið komið inn í borgina, mætir ykkur maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer,11og segið við húsráðandann: Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?12Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað.13Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.14Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum.15Og hann sagði við þá: Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður, áður en ég líð.16Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar, fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.17Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði: Takið þetta og skiptið með yður.18Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.19Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.20Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt.21En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu hjá mér.22Mannssonurinn fer að sönnu þá leið, sem ákveðin er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur.23Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta.24Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur.25En Jesús sagði við þá: Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn.26En eigi sé yður svo farið, heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn.27Því hvort er sá meiri, sem situr til borðs, eða hinn, sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn.28En þér eruð þeir sem hafið verið stöðugir með mér í freistingum mínum.29Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér,30að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.31Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yður eins og hveiti.32En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.33En Símon sagði við hann: Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.34Jesús mælti: Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag, munt þú þrisvar hafa neitað því, að þú þekkir mig.35Og hann sagði við þá: Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð? Þeir svöruðu: Nei, ekkert.36Þá sagði hann við þá: En nú skal sá, er pyngju hefur, taka hana með sér og eins sá, er mal hefur, og hinn, sem ekkert á, selji yfirhöfn sína og kaupi sverð.37Því ég segi yður, að þessi ritning á að rætast á mér: með illvirkjum var hann talinn. Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað.38En þeir sögðu: Herra, hér eru tvö sverð. Og hann sagði við þá: Það er nóg.39Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum.40Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá: Biðjið, að þér fallið ekki í freistni.41Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði:42Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.43Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann.44Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina.45Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð.46Og hann sagði við þá: Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni.47Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann.48Jesús sagði við hann: Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?49Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?50Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.51Þá sagði Jesús: Hér skal staðar nema. Og hann snart eyrað og læknaði hann.52Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja?53Daglega var ég með yður í helgidóminum, og þér lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er yðar tími og máttur myrkranna.54En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar.55Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra.56En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: Þessi maður var líka með honum.57Því neitaði hann og sagði: Kona, ég þekki hann ekki.58Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: Þú ert líka einn af þeim. En Pétur svaraði: Nei, maður minn, það er ég ekki.59Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður.60Pétur mælti: Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður. Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani.61Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann: Áður en hani galar í dag, muntu þrisvar afneita mér.62Og hann gekk út og grét beisklega.63En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu,64huldu andlit hans og sögðu: Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?65Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann.66Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn.67Þeir sögðu: Ef þú ert Kristur, þá seg oss það. En hann sagði við þá: Þótt ég segi yður það, munuð þér ekki trúa,68og ef ég spyr yður, svarið þér ekki.69En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar Guðs kraftar.70Þá spurðu þeir allir: Ert þú þá sonur Guðs? Og hann sagði við þá: Þér segið, að ég sé sá.71En þeir sögðu: Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.

22.1-6 Hlst. 26.1-5,14-16; Mrk 14.1-2,10-11; Jóh 11.45-53
22.1 Hátíð ósýrðu brauðanna 2Mós 12.1-27; Jóh 11.57
22.2 Ráðagjörðir gegn Jesú Matt 12.14+ ; Lúk 19.47+ og hlst. – ótti við fólkið Matt 14.5+
22.3 Satan Mrk 1.13+ – Júdas Ískaríot Matt 10.4+ – einn þeirra tólf Post 1.17; sbr Matt 10.2+ – Satan og Júdas Jóh 13.2,27
22.4 Varðforingjar musterisins Lúk 22.52; Post 4.1; 5.24,26
22.7-13 Hlst. Matt 26.17-25; Mrk 14.12-21; Jóh 13.21-30
22.7 Páskalambið og ósýrð brauð Lúk 22.1+
22.8 Búa til páskamáltíðar 2Mós 12.8-11
22.13 Eins og Jesú hafði sagt Lúk 19.32
22.14-23 Hlst. Matt 26.26-30; Mrk 14.22-26; 1Kor 11.23-25
22.15 Þjáningar og dauði Jesú Lúk 24.26,46; Post 1.3; 3.18; 17.3; Heb 2.18; 1Pét 1.21
22.16 Fullkomnast í Guðs ríki Lúk 13.29
22.18 Guðs ríki Matt 6.10+ ; sbr Matt 3.2+
22.19 Tók brauð Lúk 24.30; Post 27.35 – í mína minningu 1Kor 11.24-25; sbr 2Mós 12.14; 13.9; 5Mós 16.3
22.20 Blóð sáttmálans 2Mós 24.8; Sak 9.11; Heb 9.20 – hinn nýji sáttmáli Jer 31.31; 32.40; 1Kor 11.25
22.21 Hönd þess, er mig svíkur … Slm 41.10; Jóh 13.21
22.22 Mannssonurinn Matt 8.20+ – þá leið, sem ákveðin er Post 2.23; 10.42; 17.31
22.23 Hver þeirra? Jóh 13.22
22.24 Mestur Lúk 9.46 og hlst.
22.26 Þjónustan Matt 20.26+ ; Mrk 9.35
22.27 Jesús þjónar Jóh 13.4-16
22.29 Sá, sem fær þeim ríkið í hendur Lúk 12.32
22.30 Eta og drekka í Guðs ríki Lúk 13.28+
22.31-34 Hlst. Matt 26.31-35; Mrk 14.27-31; Jóh 13.36-38
22.31 Símon sbr Matt 4.18+ – Satan krafðist yðar 2Kor 2.11; sbr Mrk 1.13+ – sælda eins og hveiti Am 9.9
22.33 Jafnvel í dauða Lúk 22.54; Jóh 13.37
22.34 Þrisvar Lúk 22.61
22.35 Þegar ég sendi ykkur Lúk 9.3 og hlst.; 10.4
22.36 Nú skal kaupa sverð Lúk 22.49
22.37 Með illvirkjum Jes 53.12; Lúk 12.50; Post 8.32-33
22.39-46 Hlst. Matt 26.36-46; Mrk 14.32-42
22.39 Olíufjallið Jóh 18.1; sbr Mrk 11.1+ – eins og hann var vanur Lúk 21.37
22.40 Freistni og bæn Matt 6.13; Lúk 22.46 og hlst.
22.42 Kaleikur Mrk 10.38 – sem þú vilt Matt 6.10+
22.46 Freistni og bæn Lúk 22.40+
22.47-53 Hlst. Matt 26.47-56; Mrk 14.43-50; Jóh 18.3-11
22.49 Bregða sverði Lúk 22.36
22.50 Sneið af eyrað Jóh 18.10,26
22.51 Hér skal staðar nema Jóh 18.11
22.52 Eins og gegn ræningja Lúk 22.37
22.53 Daglega í helgidóminum Lúk 19.47; 21.37; Jóh 18.20 – lögðu ekki hendur á hann Jóh 7.30; 8.20 – máttur myrkranna Post 26.18; Kól 1.13
22.54-62 Hlst. Matt 26.57-58,69-75; Mrk 14.53-54,66-72; Jóh 18.12-18,25-27
22.54 Pétur, álengdar Lúk 22.33
22.61 Þrisvar Lúk 22.34
22.63-65 Hlst. Matt 26.67-68; Mrk 14.65
22.66-71 Hlst. Matt 26.59-66; Mrk 14.55-64; Jóh 18.19-24
22.66 Öldungar, æðstu prestar og fræðimenn Mrk 11.27+
22.67 Segðu okkur það Jóh 10.24 – þið munuð ekki trúa Jóh 3.12; 8.45
22.69 Mannssonurinn Matt 8.20+ – til hægri handar Guðs Slm 110.1; Matt 22.44+ ; sbr Post 7.56
22.70 Sonur Guðs Matt 14.33+ ; Mrk 1.1+ ; Lúk 1.35+ ; 4.3,9; Jóh 10.24,36