1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Bjóð þú Ísraelsmönnum að færa þér tæra olíu af steyttum olífuberjum til ljósastikunnar, svo að lampar verði ávallt settir upp.3Fyrir utan fortjald sáttmálsins í samfundatjaldinu skal Aron tilreiða þá frá kveldi til morguns frammi fyrir Drottni stöðuglega. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns.4Hann skal raða lömpunum á gull-ljósastikuna frammi fyrir Drottni stöðuglega.5Þú skalt taka fínt mjöl og baka úr því tólf kökur. Skulu vera tveir tíundupartar úr efu í hverri köku.6Og þú skalt leggja þær í tvær raðir, sex í hvora röð, á gullborðið frammi fyrir Drottni.7Og þú skalt láta hjá hvorri röð hreina reykelsiskvoðu, og skal hún vera sem ilmhluti af brauðinu, eldfórn Drottni til handa.8Á hverjum hvíldardegi skal hann raða þessu frammi fyrir Drottni stöðuglega. Er það ævinlegur sáttmáli af hálfu Ísraelsmanna.9Skal Aron og synir hans fá það og eta það á helgum stað, því að það heyrir honum sem háhelgur hluti af eldfórnum Drottins eftir ævinlegu lögmáli.10Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum.11Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans.12Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins.13Og Drottinn talaði við Móse og sagði:14Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann.15Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd.16Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.17Og ljósti einhver mann til bana, skal hann líflátinn verða.18Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, líf fyrir líf.19Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört:20Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur.21Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, en sá, er lýstur mann til bana, skal líflátinn.22Þér skuluð hafa ein lög, hvort heldur útlendur maður eða innborinn á í hlut, því að ég er Drottinn, Guð yðar.23Og Móse talaði við Ísraelsmenn, og þeir leiddu lastmælandann út fyrir herbúðirnar og lömdu hann grjóti. Og Ísraelsmenn gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

24.2 Ljósastika og olía 2Mós 25.31-40; 27.20-21; 1Sam 3.3
24.5 Skoðunarbrauð 2Mós 25.30; 1Sam 21.4-6; Matt 12.4 og hlst.
24.7 Hreint reykelsi 3Mós 2.1
24.9 Helgur staður 3Mós 6.9+
24.10 Guðlast 2Mós 22.27; 1Sam 3.13; 1Kon 21.10,13; Jes 8.21; Matt 9.3+
24.12 Úrskurður fyrir Drottin 4Mós 27.5-7
24.14 Grýting 4Mós 15.35-36; Jós 7.25; Post 7.58
24.16 Akomumaður eða innfæddur 3Mós 16.29+
24.17 Morð 2Mós 20.13 og hlst. 21.12; 1Kon 21.19; Matt 5.21+
24.18 Hann skal bæta sbr 2Mós 21.33-34; 22.13
24.19 Hið sama 2Mós 21.23-25; 5Mós 19.19-21; Ób 15; Matt 5.38-42