1Maður nokkur var í Sesareu, Kornelíus að nafni, hundraðshöfðingi í ítölsku hersveitinni.2Hann var trúmaður og dýrkaði Guð og heimafólk hans allt. Gaf hann lýðnum miklar ölmusur og var jafnan á bæn til Guðs.3Dag einn um nón sá hann berlega í sýn engil Guðs koma inn til sín, er sagði við hann: Kornelíus!4Hann starði á hann, varð óttasleginn og sagði: Hvað er það, herra? Engillinn svaraði: Bænir þínar og ölmusur eru stignar upp til Guðs, og hann minnist þeirra.5Send þú nú menn til Joppe og lát sækja Símon nokkurn, er kallast Pétur.6Hann gistir hjá Símoni nokkrum sútara, sem á hús við sjóinn.7Þegar engillinn, sem talaði við hann, var farinn, kallaði hann á tvo heimamenn sína og guðrækinn hermann, einn þeirra, er honum voru handgengnir,8sagði þeim frá öllu og sendi þá til Joppe.9Daginn eftir, er þeir voru á leiðinni og nálguðust bæinn, gekk Pétur upp á húsþakið um hádegi til að biðjast fyrir.10Kenndi hann þá hungurs og vildi matast. En meðan verið var að matreiða, varð hann frá sér numinn,11sá himininn opinn og hlut nokkurn koma niður, líkan stórum dúki. Var hann látinn síga til jarðar á fjórum skautum.12Þar voru á alls kyns ferfætt dýr, skriðdýr jarðar, svo og fuglar himins.13Og honum barst rödd: Slátra nú, Pétur, og et!14Pétur sagði: Nei, Drottinn, engan veginn, aldrei hef ég etið neitt vanheilagt né óhreint.15Aftur barst honum rödd: Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!16Þetta gjörðist þrem sinnum, og jafnskjótt var hluturinn upp numinn til himins.17Meðan Pétur var að reyna að ráða í, hvað þessi sýn ætti að merkja, höfðu sendimenn Kornelíusar spurt uppi hús Símonar. Nú stóðu þeir fyrir dyrum úti18og kölluðu: Er Símon sá, er nefnist Pétur, gestur hér?19Pétur var enn að hugsa um sýnina, þegar andinn sagði við hann: Menn eru að leita þín.20Flýt þér nú ofan og far hiklaust með þeim, því að ég hef sent þá.21Pétur gekk þá niður til mannanna og sagði: Ég er sá sem þér leitið að. Hvers vegna eruð þér komnir hér?22Þeir sögðu: Kornelíus hundraðshöfðingi, réttlátur maður og guðhræddur og orðsæll af allri Gyðinga þjóð, fékk bendingu frá heilögum engli að senda eftir þér og fá þig heim til sín og heyra, hvað þú hefðir að flytja.23Þá bauð hann þeim inn og lét þá gista. Daginn eftir tók hann sig upp og fór með þeim og nokkrir bræður frá Joppe með honum.24Næsta dag komu þeir til Sesareu. Kornelíus bjóst við þeim og hafði boðið til sín frændum og virktavinum.25Þegar Pétur kom, fór Kornelíus á móti honum, féll til fóta honum og veitti honum lotningu.26Pétur reisti hann upp og sagði: Statt upp, ég er maður sem þú.27Og hann ræddi við hann og gekk inn og fann þar marga menn saman komna.28Hann sagði við þá: Þér vitið, að Gyðingi er bannað að eiga samneyti við annarrar þjóðar mann eða koma til hans. En Guð hefur sýnt mér, að ég á engan að kalla vanheilagan eða óhreinan.29Fyrir því kom ég mótmælalaust, er eftir mér var sent. Nú spyr ég, hvers vegna þér senduð eftir mér.30Kornelíus mælti: Í þetta mund fyrir fjórum dögum var ég að biðjast fyrir að nóni í húsi mínu. Þá stóð maður frammi fyrir mér í skínandi klæðum31og mælti: Kornelíus, bæn þín er heyrð, og Guð hefur minnst ölmusugjörða þinna.32Nú skalt þú senda til Joppe eftir Símoni, er kallast Pétur. Hann gistir í húsi Símonar sútara við sjóinn.33Því sendi ég jafnskjótt til þín, og vel gjörðir þú að koma. Nú erum vér hér allir fyrir augsýn Guðs til að heyra allt, sem Drottinn hefur boðið þér.34Þá tók Pétur til máls og sagði: Sannlega skil ég nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit.35Hann tekur opnum örmum hverjum þeim, sem óttast hann og ástundar réttlæti, hverrar þjóðar sem er.36Orðið, sem hann sendi börnum Ísraels, þá er hann flutti fagnaðarboðin um frið fyrir Jesú Krist, sem er Drottinn allra, þekkið þér.37Þér vitið, hvað gjörst hefur um alla Júdeu, en hófst í Galíleu eftir skírnina, sem Jóhannes prédikaði.38Það er sagan um Jesú frá Nasaret, hvernig Guð smurði hann heilögum anda og krafti. Hann gekk um, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir, því Guð var með honum.39Vér erum vottar alls þess, er hann gjörði, bæði í landi Gyðinga og í Jerúsalem. Og hann hengdu þeir upp á tré og tóku af lífi.40En Guð uppvakti hann á þriðja degi og lét hann birtast,41ekki öllum lýðnum, heldur þeim vottum, sem Guð hafði áður kjörið, oss, sem átum og drukkum með honum, eftir að hann var risinn upp frá dauðum.42Og hann bauð oss að prédika fyrir lýðnum og vitna, að hann er sá dómari lifenda og dauðra, sem Guð hefur fyrirhugað.43Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn fyrirgefningu syndanna.44Meðan Pétur var enn að mæla þessi orð, kom heilagur andi yfir alla þá, er orðið heyrðu.45Hinir trúuðu Gyðingar, sem komið höfðu með Pétri, urðu furðu lostnir, að heilögum anda, gjöf Guðs, skyldi einnig úthellt yfir heiðingjana,46því þeir heyrðu þá tala tungum og mikla Guð.47Þá mælti Pétur: Hver getur varnað þess, að þeir verði skírðir í vatni? Þeir hafa fengið heilagan anda sem vér.48Og hann bauð, að þeir skyldu skírðir verða í nafni Jesú Krists. Síðan báðu þeir hann að standa við í nokkra daga.

10.1-8 Vitrun Kornelíusar Post 10.30-33; sbr 11.13
10.1 Sesarea Post 23.23+
10.2 Velviljaður hundraðshöfðingi Lúk 7.2,5; Post 27.1,3 – guðrækinn Post 3.12; 10.7; 1Tím 3.16; 4.7-8; 6.3,5-6,11; 2Tím 3.5,12; Tít 1.1; 2.12; 2Pét 1.3,6; 2.9; 3.11 – guðhræðsla Okv 1.7; Sír 1.11-20; Post 9.31; 10.22,35; 13.16,26; sbr 13.43; 18.7 – allt heimafólk Post 11.14; 16.15,31; 18.8; sbr 1Kor 1.16 – miklar ölmusur Post 9.36; 10.4,31
10.3 Um nón Post 3.1 – í sýn Post 7.55-56; 9.10,12; 10.17,19; 11.5; 12.9; 16.9-10; 18.9 – engill Guðs Lúk 24.4,23; Post 5.19; 8.26; 10.7,22 (sbr v.30); 11.13; 12.7-10; sbr Matt 1.20+
10.4 Minnast 2Mós 12.14; 3Mós 2.2; Jós 4.7; Post 10.31
10.5 Símon, er kallast Pétur Matt 4.18+
10.10 Fékk vitrun Post 11.5; 22.17; sbr Mrk 5.42; 16.8; Lúk 5.26; Post 3.10
10.11-20 Vitrun Péturs Post 11.5-12; sbr 10.28
10.11 Sá himininn opinn Matt 3.16+
10.12 Ferfætt dýr, skriðdýr, fuglar 1Mós 1.21,24; sbr 6.7; 7.14; Post 11.6
10.14 Ekkert vanheilagt né óhreint 3Mós 11.1-47; Esk 4.14
10.15 Guð hefur lýst hreint Mrk 7.15,19; Post 10.28,34
10.18 Símon Pétur Matt 4.18+
10.19 Andinn sagði Post 11.12; 13.2
10.22 Kornelíus Post 10.1-2 – sendi eftir Pétri Post 10.5 – velviljaður hundraðshöfðingi Post 10.2+
10.25-26 Ég er maður Post 14.13-15; Opb 19.10
10.26 Maður sem þú SSal 7.1
10.28 Kalla engan vanheilagan Post 10.15; 11.3,9
10.30-33 Vitrun Kornelíusar Post 10.1-8
10.30 Baðst fyrir að nóni Post 3.1 – í skínandi klæðum Lúk 24.4; Post 1.10
10.32 Símon Pétur Matt 4.18+ – hjá Símoni sútara Post 9.43; 10.6
10.34 Tók til máls Post 8.35+ – ekki manngreinarálit 5Mós 10.17; 2Kro 19.7; Róm 2.11; Gal 2.6; Ef 6.9; Kól 3.25; 1Pét 1.17
10.35 Tekur opnum örmum Jóh 9.31; Róm 14.18
10.36 Postulleg boðun Post 2.14+ – Guð sendir orð sitt Slm 107.20; 147.18 – fagnaðarerindið um frið Jes 52.7; Nah 2.1 – Ísrael Post 13.46 – Drottinn allra Post 17.14; 19.16
10.37 Hófst í Galíleu Matt 4.12,17; Mrk 1.14
10.38 Smurning heilags anda Jes 61.1; Lúk 3.21-22; 4.18-21 – Guð var með honum Jóh 3.2
10.39 Vottar Post 1.8+ – hengdu upp á tré 5Mós 21.22; sbr Post 2.23; 3.13-15; 13.28; Gal 3.13
10.40-41 Guð uppvakti hann Post 2.24+
10.40 Á þriðja degi Lúk 9.22; 13.32; 18.33; 24.7,46; 1Kor 15.4
10.41 Ekki öllum, heldur okkur Jóh 14.19,22 – eftir upprisu hans Lúk 24.30,42; Jóh 21.12-13; Post 1.4
10.42 Dómari lifenda og dauðra Post 17.31; Róm 14.9; 2Tím 4.1; 1Pét 4.5; sbr Matt 25.31-46; Róm 2.16; 3.6; 1Pét 1.17
10.43 Spámennirnir bera vitni Post 3.18+ – fyrirgefning syndanna Jes 33.24; 53.5-6; Jer 31.34; Dan 9.24; sbr Róm 1.17; 9.33; 10.13 – vegna hans Post 3.16+ – hver, sem á hann trúir Post 11.17; 15.9; Róm 1.16
10.44 Heilagur andi kom yfir þá Post 11.15; 15.8
10.46 Tala tungum Mrk 16.17; Post 2.4,11,17; 19.6
10.47 Hver getur varnað? Post 8.36
10.48 Skírn í nafni Jesú Krists Post 2.38+ – báðu hann standa við Jóh 4.40