1Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína:2Þér vitið, að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.3Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,4og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi.5En þeir sögðu: Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum.6En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa.7Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði.8Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: Til hvers er þessi sóun?9Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.10Jesús varð þess vís og sagði við þá: Hvað eruð þér að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér.11Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.12Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn, var hún að búa mig til greftrunar.13Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindi þetta verður flutt, um heim allan, mun þess og getið verða, sem hún gjörði, til minningar um hana.14Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna15og sagði: Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú? En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.16Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.17Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?18Hann mælti: Farið til ákveðins manns í borginni, og segið við hann: Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.19Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.20Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf.21Og er þeir mötuðust, sagði hann: Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.22Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: Ekki er það ég, herra?23Hann svaraði þeim: Sá sem dýfði hendi í fatið með mér, mun svíkja mig.24Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.25En Júdas, sem sveik hann, sagði: Rabbí, ekki er það ég? Jesús svaraði: Þú sagðir það.26Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: Takið og etið, þetta er líkami minn.27Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: Drekkið allir hér af.28Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda.29Ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags, er ég drekk hann nýjan með yður í ríki föður míns.30Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.31Þá segir Jesús við þá: Á þessari nóttu munuð þér allir hneykslast á mér, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.32En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.33Þá segir Pétur: Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast.34Jesús sagði við hann: Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.35Pétur svarar: Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér. Eins töluðu allir lærisveinarnir.36Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana: Setjist hér, meðan ég fer og biðst fyrir þarna.37Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist.38Hann segir við þá: Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.39Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: Faðir minn, ef verða má, þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.40Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund?41Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.42Aftur vék hann brott annað sinn og bað: Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist, að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji.43Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra.44Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr.45Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: Sofið þér enn og hvílist? Sjá, stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.46Standið upp, förum! Í nánd er sá, er mig svíkur.47Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli.48Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum.49Hann gekk beint að Jesú og sagði: Heill, rabbí! og kyssti hann.50Jesús sagði við hann: Vinur, hví ertu hér? Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann.51Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.52Jesús sagði við hann: Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla.53Hyggur þú, að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla?54Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, sem segja, að þetta eigi svo að verða?55Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn: Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum.56En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist. Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.57Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir.58Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á.59Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann,60en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir61og sögðu: Þessi maður sagði: Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.62Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?63En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?64Jesús svarar honum: Þú sagðir það. En ég segi yður: Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins.65Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið.66Hvað líst yður? Þeir svöruðu: Hann er dauðasekur.67Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum68og sögðu: Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?69En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.70Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: Ekki veit ég, hvað þú ert að fara.71Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: Þessi var með Jesú frá Nasaret.72En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann.73Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín.74En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani.75Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér. Og hann gekk út og grét beisklega.

26.1-5 Hlst. Mrk 14.1-2; Lúk 22.1-2; Jóh 11.45-53
26.1 Að loknu máli Matt 7.28+
26.2 Páskar 2Mós 12.1-27 – þjáningar Mannssonarins Matt 16.21+ – framselja Matt 4.12; 5.25; 10.17,19; 17.22 og hlst.; 27.26 og hlst.; Mrk 10.33; Lúk 24.7,20; Jóh 19.16; Róm 4.25; 1Kor 11.23; Gal 2.20; Ef 5.2
26.3 Ráðið kemur saman Jóh 11.47-53
26.6-13 Hlst. Mrk 14.3-9; Jóh 12.1-8
26.6 Betanía Matt 21.17+
26.7 Kona sbr Lúk 7.36-38
26.9 Selja og gefa Matt 19.21+
26.10 Gott verk Tob 1.17-19; Post 8.2
26.11 Fátækir 5Mós 15.11
26.13 Fagnaðarerindi Mrk 1.1+ – um heim Matt 24.14; Róm 10.18
26.14-16 Hlst. Mrk 14.10-11; Lúk 22.3-6
26.14 Hinir tólf Matt 10.2+ – Júdas Ískaríot Matt 10.4+
26.15 Þrjátíu silfurpeningar 2Mós 21.32; Sak 11.12
26.16 Framselja Matt 26.2+
26.17-25 Hlst. Mrk 14.12-21; Lúk 22.7-14,21-23; Jóh 13.21-30
26.17 Ósýrð brauð Mrk 14.1 og hlst. 14.12; Lúk 22.1; Post 12.3; 20.6; 1Kor 5.7-8 – hinn fyrsti dagur 2Mós 12.14-20 – páskar Matt 26.2
26.18 Minn tími Jóh 13.1; sbr Jóh 7.30
26.20 Þeir tólf Matt 10.2+
26.21 Svíkja Matt 26.2+
26.23 Dýfði í fatið með mér Slm 41.10
26.24 Mannssonurinn Matt 8.20+ – um hann er ritað Slm 22.7,8,16,18; Jes 53.9 – vei þeim manni Matt 11.21+ – betra væri Matt 18.6 og hlst.
26.25 Júdas Matt 26.14 – þín orð Matt 26.64
26.26-30 Hlst. Mrk 14.22-26; Lúk 22.15-20; 1Kor 11.23-25
26.26 Brauð Matt 14.19 og hlst.
26.27 Kaleikur 1Kor 10.16
26.28 Blóð sáttmálans 2Mós 24.8; Sak 9.11; Heb 9.20 – fyrir marga Jes 53.12 – fyrirgefning synda Mrk 1.4; Lúk 1.77; 3.3; 24.47; Post 2.38; 5.31; 10.43; 13.38; 26.18; Ef 1.7; Kól 1.14; Heb 9.22; 10.18
26.29 Í ríki föður míns Matt 8.11
26.30 Lofsöngurinn Slm 113-118
26.31-35 Hlst. Mrk 14.27-31; Lúk 22.31-34; Jóh 13.36-38
26.31 Allir hafna mér Matt 5.29+ – ritað er Sak 13.7; sbr Matt 26.56; Jóh 16.32
26.35 Deyja með Jesú Jóh 11.16
26.36-46 Hlst. Mrk 14.32-42; Lúk 22.39-46
26.36 Getsemane sbr Jóh 18.1 – Jesús biðst fyrir Matt 14.23+ ; Heb 5.7-8
26.37 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1+ ; sbr Matt 4.18+
26.38 Hryggð allt til dauða 1Kon 19.4; Jóh 12.27 – vakið Matt 24.42+
26.39 Þessi kaleikur Matt 20.22+ – sem þú vilt Matt 6.10+
26.41 Fallið ekki í freistni Matt 6.13; Lúk 11.4
26.44 Þriðja sinn 2Kor 12.8
26.45 Stundin er komin Jóh 12.23; 13.1; 17.1 – framseldur Matt 26.2+
26.46 Standið upp Jóh 14.31
26.47-56 Hlst. Mrk 14.43-50; Lúk 22.47-53; Jóh 18.3-12
26.47 Júdas Matt 10.4+
26.51 Sneið af eyrað Jóh 18.26
26.52 Bregða sverði, falla fyrir sverði 1Mós 9.6; Opb 13.10
26.54 Ritningar rætast Matt 1.22+
26.55 Daglega Lúk 19.47; 21.37; Jóh 18.20
26.56 Lærisveinarnir flýja Sak 13.7; Matt 26.31; Jóh 16.32
26.57-68 Hlst Mrk 14.53-65; Lúk 22.54-55,63-71; Jóh 18.13-14,19-24
26.57 Kaífas Matt 26.3; Lúk 3.2; Jóh 11.49; 18.13-14,24,28; Post 4.6
26.60 Ljúgvottar Slm 27.12; 35.11; Post 6.13
26.61 Eyðilegging musterisins Matt 24.2-3; 27.40; Jóh 2.19; Post 6.14
26.63 Jesús þagði Matt 27.12,14; sbr Jes 53.7; Post 8.32 – sonur Guðs Matt 14.33+
26.64 Þín orð Matt 26.25 – Mannssonurinn Matt 8.20+ – til hægri handar Slm 110.1; Matt 22.44+ – koma á skýjum Matt 24.30+
26.65 Reif klæði sín 4Mós 14.6; 2Sam 13.19; Esr 9.3; Job 1.20; 2.12; Jer 36.24; Post 14.14 – guðlasta Matt 9.3+
26.66 Dauðasekur 3Mós 24.16; Jóh 19.7
26.67 Misþyrmingar Jes 50.5-7; 53.7; sbr Matt 21.35+
26.69-75 Hlst. Mrk 14.66-72; Lúk 22.56-62; Jóh 18.15-18,25-27
26.71 Frá Nasaret Matt 2.23+
26.74 Hani gól Matt 26.34; Jóh 13.38