1Og Móse gekk neðan af Móabsheiðum upp á Nebófjall, Pisgatind, sem er gegnt Jeríkó. Þaðan sýndi Drottinn honum gjörvallt landið: Gíleað allt til Dan,2allt Naftalí og Efraímsland og Manasse, og allt Júdaland allt til vesturhafsins,3og Suðurlandið og Jórdan-sléttlendið, dalinn hjá Jeríkó, pálmaborginni, allt til Sóar.4Og Drottinn sagði við hann: Þetta er landið, sem ég sór Abraham, Ísak og Jakob, er ég sagði: Niðjum þínum vil ég gefa það! Ég hefi látið þig líta það eigin augum, en yfir um þangað skalt þú ekki komast.5Móse, þjónn Drottins, dó þar í Móabslandi, eins og Drottinn hafði sagt,6og hann var grafinn í dalnum í Móabslandi, gegnt Bet Peór, en enginn maður veit enn til þessa dags, hvar gröf hans er.7Og Móse var hundrað og tuttugu ára gamall, er hann andaðist. Eigi glapnaði honum sýn, og eigi þvarr þróttur hans.8Ísraelsmenn grétu Móse á Móabsheiðum í þrjátíu daga, þá enduðu sorgargrátsdagarnir eftir Móse.9En Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda, því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann, og Ísraelsmenn hlýddu honum og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.10En eigi reis framar upp í Ísrael annar eins spámaður og Móse, er Drottinn umgekkst augliti til auglitis,11þegar litið er til allra þeirra tákna og undra, er Drottinn hafði sent hann til að gjöra í Egyptalandi á Faraó og öllum þjónum hans og öllu landi hans,12og þegar litið er til alls hins volduga máttar og allra hinna miklu og hræðilegu verka, er Móse gjörði í augsýn alls Ísraels. og hræðilegu verka, er Móse gjörði í augsýn alls Ísraels.

34.1 Nebófjall 5Mós 3.27; 32.49
34.4 Fyrirheitna landið 5Mós 1.8+ – ekki komast 5Mós 3.27; 31.2
34.5 Móse deyr Jós 1.1-2
34.7 Þróttur Slm 92.13-15
34.8 Sorg í þrjátíu daga 4Mós 20.29+
34.9 Vísdómsandi 2Kon 2.15; Jes 11.2 – leggja hendur yfir 4Mós 27.18; Post 6.6
34.10 Spámaður eins og Móse sbr 5Mós 18.15; 4Mós 12.6-8 – augliti til auglitis 5Mós 5.4+
34.11 Tákn og stórmerki 5Mós 4.34+
34.12 Máttur Drottins 5Mós 3.24+