1Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann,2en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.3En hann sagði þeim þessa dæmisögu:4Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim, sem týndur er, þar til hann finnur hann?5Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér, er hann finnur hann.6Þegar hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: Samgleðjist mér, því að ég hef fundið sauðinn minn, sem týndur var.7Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki hafa iðrunar þörf.8Eða kona, sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega, uns hún finnur hana?9Og er hún hefur fundið hana, kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: Samgleðjist mér, því að ég hef fundið drökmuna, sem ég týndi.10Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun.11Enn sagði hann: Maður nokkur átti tvo sonu.12Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna, sem mér ber. Og hann skipti með þeim eigum sínum.13Fáum dögum síðar tók yngri sonurinn allt fé sitt og fór burt í fjarlægt land. Þar sóaði hann eigum sínum í óhófsömum lifnaði.14En er hann hafði öllu eytt, varð mikið hungur í því landi, og hann tók að líða skort.15Fór hann þá og settist upp hjá manni einum í því landi. Sá sendi hann út á lendur sínar að gæta svína.16Þá langaði hann að seðja sig á drafinu, er svínin átu, en enginn gaf honum.17En nú kom hann til sjálfs sín og sagði: Hve margir eru daglaunamenn föður míns og hafa gnægð matar, en ég ferst hér úr hungri!18Nú tek ég mig upp, fer til föður míns og segi við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér.19Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Lát mig vera sem einn af daglaunamönnum þínum.20Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn langt í burtu, sá faðir hans hann og kenndi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann.21En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn.22Þá sagði faðir hans við þjóna sína: Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum.23Sækið og alikálfinn og slátrið, vér skulum eta og gjöra oss glaðan dag.24Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn. Tóku menn nú að gjöra sér glaðan dag.25En eldri sonur hans var á akri. Þegar hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann hljóðfæraslátt og dans.26Hann kallaði á einn piltanna og spurði, hvað um væri að vera.27Hann svaraði: Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefur slátrað alikálfinum, af því að hann heimti hann heilan heim.28Þá reiddist hann og vildi ekki fara inn. En faðir hans fór út og bað hann koma.29En hann svaraði föður sínum: Nú er ég búinn að þjóna þér öll þessi ár og hef aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefur þú aldrei gefið kiðling, að ég gæti glatt mig með vinum mínum.30En þegar hann kemur, þessi sonur þinn, sem hefur sóað eigum þínum með skækjum, þá slátrar þú alikálfinum fyrir hann.31Hann sagði þá við hann: Barnið mitt, þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt.32En nú varð að halda hátíð og fagna, því hann bróðir þinn, sem var dauður, er lifnaður aftur, hann var týndur og er fundinn.

15.1-7 Hlst. Matt 18.12-14
15.1 Tollheimtumenn Matt 5.46+ – bersyndugir Lúk 5.30; 7.34
15.2 Vinur syndara Lúk 5.30+
15.4 Hjörðin Lúk 12.32+ – í leit að týndum sauði Jer 23.1-4; Esk 34.11,16; Mík 4.6-7; Lúk 19.10
15.7 Á himni Lúk 11.16+
15.10 Með englum Guðs Lúk 12.8
15.13 Sóaði eigum sínum Okv 29.3
15.15 Svín 5Mós 14.8
15.18 Ég hef syndgað Slm 51.6 – himininn Lúk 11.16+
15.20 Féll um háls honum Tob 11.8 – kyssti hann 2Sam 14.33
15.24 Dauður og lifnaður aftur Ef 2.1,5; 5.14
15.31 Allt mitt er þitt Jóh 17.10