1Nú safnast að honum farísear og nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem.2Þeir sáu, að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum höndum.3En farísear, og reyndar Gyðingar allir, eta ekki nema þeir taki áður handlaugar, og fylgja þeir svo erfðavenju forfeðra sinna.4Og ekki neyta þeir matar, þegar þeir koma frá torgi, nema þeir hreinsi sig áður. Margt annað hafa þeir gengist undir að rækja, svo sem að hreinsa bikara, könnur og eirkatla.5Farísearnir og fræðimennirnir spyrja hann: Hvers vegna fylgja lærisveinar þínir ekki erfðavenju forfeðranna, heldur neyta matar með vanhelgum höndum?6Jesús svarar þeim: Sannspár var Jesaja um yður hræsnara, þar sem ritað er: Þessi lýður heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.7Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.8Þér hafnið boðum Guðs, en haldið erfikenning manna.9Enn sagði hann við þá: Listavel gjörið þér að engu boð Guðs, svo þér getið rækt erfikenning yðar.10Móse sagði: Heiðra föður þinn og móður þína. og Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.11En þér segið: Ef maður segir við föður sinn eða móður: Það, sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er korban, það er musterisfé,12þá leyfið þér honum ekki framar að gjöra neitt fyrir föður sinn eða móður.13Þannig látið þér erfikenning yðar, sem þér fylgið fram, ógilda orð Guðs. Og margt annað gjörið þér þessu líkt.14Aftur kallaði hann til sín mannfjöldann og sagði: Heyrið mig allir, og skiljið.15Ekkert er það utan mannsins, er saurgi hann, þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn, sem út frá honum fer.16Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!17Þegar hann var kominn inn frá fólkinu, spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna.18Og hann segir við þá: Eruð þér einnig svo skilningslausir? Skiljið þér eigi, að ekkert, sem fer inn í manninn utan frá, getur saurgað hann?19Því að ekki fer það inn í hjarta hans, heldur maga og út síðan í safnþróna. Þannig lýsti hann alla fæðu hreina.20Og hann sagði: Það sem fer út frá manninum, það saurgar manninn.21Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp,22hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska.23Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.24Hann tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist.25Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta, en dóttir hennar hafði óhreinan anda.26Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað hann að reka illa andann út af dóttur sinni.27Hann sagði við hana: Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.28Hún svaraði honum: Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna.29Og hann sagði við hana: Vegna þessara orða skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttur þinni.30Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu, og illi andinn var farinn.31Síðan hélt hann úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns.32Þá færa þeir til hans mann, daufan og málhaltan, og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann.33Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu.34Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: Effaþa, það er: Opnist þú.35Og eyru hans opnuðust, og haft tungu hans losnaði, og hann talaði skýrt.36Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum, en svo mjög sem hann bannaði þeim, því frekar sögðu þeir frá því.37Menn undruðust næsta mjög og sögðu: Allt gjörir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.

7.1-23 Hlst. Matt 15.1-20
7.2 Hreinsunarsiða ekki gætt Lúk 11.38
7.4 Hreinsun bikara Matt 23.25; Lúk 11.39
7.6-7 Sbr Jes 29.13
7.10 Sbr 2Mós 20.12; 5Mós 5.16; Matt 15.4+ – formæla föður eða móður 2Mós 21.17; 3Mós 20.9
7.17 Lærisveinarnir spyrja Jesú Matt 13.36; Mrk 4.10; Lúk 8.9
7.19 Öll fæða lýst hrein Post 10.9-16; Tít 1.15
7.21-22 Lestir Matt 15.19+
7.24-30 Hlst. Matt 15.21-28
7.32 Leggja hendur yfir Matt 9.18+ ; Mrk 5.23+
7.33 Sbr Mrk 8.23
7.34 Leit upp til himins Matt 14.19; Mrk 6.41
7.36 Bannaði þeim að segja frá Mrk 1.25+ – því frekar Mrk 1.45
7.37 Daufir, mállausir Jes 35.5-6; Matt 11.5 og hlst.