1Í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, sá ég bók, skrifaða innan og utan, innsiglaða sjö innsiglum.2Og ég sá sterkan engil, sem kallaði hárri röddu: Hver er maklegur að ljúka upp bókinni og leysa innsigli hennar?3En enginn var sá á himni eða jörðu eða undir jörðunni, sem lokið gæti upp bókinni og litið í hana.4Og ég grét stórum af því að enginn reyndist maklegur að ljúka upp bókinni og líta í hana.5En einn af öldungunum segir við mig: Grát þú eigi! Sjá, sigrað hefur ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur Davíðs, hann getur lokið upp bókinni og innsiglum hennar sjö.6Þá sá ég fyrir miðju hásætinu og fyrir verunum fjórum og öldungunum lamb standa, sem slátrað væri. Það hafði sjö horn og sjö augu, og eru það sjö andar Guðs, sendir út um alla jörðina.7Og það kom og tók við bókinni úr hægri hendi hans, er í hásætinu sat.8Þegar það hafði tekið við henni, féllu verurnar fjórar og öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir lambinu. Þeir höfðu hver um sig hörpu og gullskálar, fullar af reykelsi, það eru bænir hinna heilögu.9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar, því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.11Þá sá ég og heyrði raust margra engla, sem stóðu hringinn í kringum hásætið og verurnar og öldungana, og tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda.12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn, visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.13Og allt skapað, sem er á himni og jörðu og undir jörðunni og á hafinu, allt sem í þeim er, heyrði ég segja: Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu, sé lofgjörðin og heiðurinn, dýrðin og krafturinn um aldir alda.14Og verurnar fjórar sögðu: Amen. Og öldungarnir féllu fram og veittu lotningu.

5.1 Ritað á báðum megin Esk 2.9-10 – innsigluð Jes 29.11
5.5 Ljónið af Júda ættkvísl 1Mós 49.9; sbr Heb 7.14 – rótarkvistur Davíðs Jes 11.1,10; sbr Róm 15.12; Opb 22.16
5.6 Slátrað lamb 2Mós 12.3-6; Jes 53.7; 1Pét 1.19-20; Opb 5.12; 13.8; 14.1
5.8 Bænir hinna heilögu Slm 141.2; Opb 8.3
5.9 Nýr söngur Jes 42.10; Slm 33.4; 40.4; 96.1; 98.1; 144.9; 149.1; Opb 14.3 – keyptir Opb 14.4
5.10 Konungar og prestar Opb 1.6+ – þeir munu ríkja Róm 5.17;Opb 20.6; 22.5-6
5.11 Þúsundir Dan 7.10; Heb 12.22
5.12 Kristi sé mátturinn … dýrðin Fil 2.9-11