1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð.2Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.3Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.4Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.5Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. Sela6Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.7Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.8Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.9Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi.

61.2 Heyr kvein mitt Slm 5.2,3; 17.1; 28.2; 54.4; 55.2; 64.2; 141.1
61.3 Frá endimörkum jarðar Jes 41.9 – hrópa til Guðs Slm 3.5+
61.4 Hef mig upp Slm 60.11; sbr 5.9+ – hæli Slm 5.12; 7.2+
61.5 Í tjaldi Slm 15.1 – í skjóli vængja þinna Slm 17.8+
61.7 Langlífi konungs Slm 21.5
61.8 Hann skal sitja … Slm 110.1; Jes 16.5 – miskunn og trúfesti Slm 25.10+
61.9 Efna heit mín Slm 66.13