1Þannig líti menn á oss svo sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs.2Nú er þess krafist af ráðsmönnum, að sérhver reynist trúr.3En mér er það fyrir minnstu að verða dæmdur af yður eða af mannlegu dómþingi. Ég dæmi mig ekki einu sinni sjálfur.4Ég er mér ekki neins ills meðvitandi, en með því er ég þó ekki sýknaður. Drottinn er sá sem dæmir mig.5Dæmið því ekki fyrir tímann, áður en Drottinn kemur. Hann mun leiða það í ljós, sem í myrkrinu er hulið, og opinbera ráð hjartnanna. Og þá mun hver um sig hljóta þann lofstír af Guði, sem hann á skilið.6En þetta hef ég yðar vegna, bræður, heimfært til sjálfs mín og Apollóss, til þess að þér af okkar dæmi mættuð læra regluna: Farið ekki lengra en ritað er, og til þess að enginn yðar hroki sér upp einum í vil, öðrum til niðrunar.7Því að hver gefur þér yfirburði? Og hvað hefur þú, sem þú hefur ekki þegið? En hafir þú nú þegið það, hví stærir þú þig þá eins og þú hefðir ekki fengið það að gjöf?8Þér eruð þegar orðnir mettir, þér eruð þegar orðnir auðugir, án vor eruð þér orðnir konungar. Og ég vildi óska, að þér væruð orðnir konungar, til þess að einnig vér mættum vera konungar með yður!9Mér virðist Guð hafa sett oss postulana sísta allra, eins og dauðadæmda á leiksviði, frammi fyrir öllum heiminum, bæði englum og mönnum.10Vér erum heimskir sökum Krists, en þér vitrir fyrir samfélag yðar við Krist! Vér erum veikir, en þér sterkir, þér eruð í hávegum hafðir, en vér óvirtir.11Allt til þessarar stundar þolum vér hungur, þorsta og klæðleysi, oss er misþyrmt, vér höfum engan samastað,12og vér stöndum í erfiði og verðum að vinna með eigin höndum.13Hrakyrtir blessum vér, ofsóttir umberum vér, lastaðir áminnum vér. Vér erum orðnir eins og sorp heimsins, afhrak allra allt til þessa.14Ekki rita ég þetta til þess að gjöra yður kinnroða, heldur til að áminna yður eins og elskuleg börn mín.15Enda þótt þér hefðuð tíu þúsund fræðara í Kristi, þá hafið þér þó eigi marga feður. Ég hef í Kristi Jesú fætt yður með því að flytja yður fagnaðarerindið.16Ég bið yður: Verið eftirbreytendur mínir.17Þess vegna sendi ég Tímóteus til yðar, sem er elskað og trútt barn mitt í Drottni. Hann mun minna yður á vegu mína í Kristi, eins og ég kenni alls staðar í hverjum söfnuði.18En nokkrir hafa gjörst hrokafullir, rétt eins og ég ætlaði ekki að koma til yðar,19en ég mun brátt koma til yðar, ef Drottinn vill, og mun ég þá kynna mér, ekki orð hinna stærilátu, heldur kraft þeirra.20Því að Guðs ríki er ekki fólgið í orðum, heldur í krafti.21Hvað viljið þér? Á ég að koma til yðar með hirtingarvönd eða í kærleika og hógværðar anda?

4.1 Leyndardómar Guðs Róm 11.25; 1Kor 15.51; Ef 3.3+
4.2 Trúir ráðsmenn Lúk 12.42+
4.4 Drottinn einn dæmir sbr Róm 14.10; Jak 4.12
4.5 Sem hver á skilið 1Kor 3.8
4.6 Ekki lengra en ritað er Róm 12.3
4.7 Hvað ekki þegið? Róm 12.6
4.8 Mett, auðug Opb 3.17 – orðin konungar Opb 3.21
4.9 Heiminum að augnagamni Heb 10.33 – dauðadæmdir Róm 8.36
4.10 Heimskir sökum Krists 1Kor 3.18
4.11 Þrenginar postulanna 2Kor 7.5+
4.12 Með eigin höndum Post 18.3; 20.34; 1Þess 2.9; 2Þess 3.8; sbr 1Kor 9.14-15 – hrakyrtir blessum við Slm 109.28; Matt 5.44; Lúk 6.28; Post 7.60; Róm 12.14
4.13 Afhrak allra Hlj 3.45
4.15 Andlegur faðir Gal 4.19
4.16 Breyr eftir Páli postula 1Kor 11.1; Fil 3.17; 1Þess 1.6
4.17 Tímóteus Post 16.1+ – Tímóteus sendur Post 19.21-22; Fil 2.19-22
4.19 Ef Guð lofar Post 18.21; Jak 4.15 – kraftur þeirra 1Kor 2.4; 1Þess 1.5
4.20 Í orðum, í krafti 1Kor 2.4