1Guð blessaði Nóa og sonu hans og sagði við þá: Verið frjósamir, margfaldist og uppfyllið jörðina.2Ótti við yður og skelfing skal vera yfir öllum dýrum jarðarinnar, yfir öllum fuglum loftsins, yfir öllu, sem hrærist á jörðinni, og yfir öllum fiskum sjávarins. Á yðar vald er þetta gefið.3Allt sem hrærist og lifir, skal vera yður til fæðu, ég gef yður það allt, eins og grænu jurtirnar.4Aðeins hold, sem sálin, það er blóðið, er í, skuluð þér ekki eta.5En yðar eigin blóðs mun ég hins vegar krefjast. Af hverri skepnu mun ég þess krefjast, og af manninum, af bróður hans, mun ég krefjast lífs mannsins.6Hver sem úthellir mannsblóði, hans blóði skal af manni úthellt verða. Því að eftir Guðs mynd gjörði hann manninn.7En ávaxtist þér og margfaldist og vaxið stórum á jörðinni og margfaldist á henni.8Og Guð mælti þannig við Nóa og sonu hans, sem voru með honum:9Sjá, ég gjöri minn sáttmála við yður og við niðja yðar eftir yður10og við allar lifandi skepnur, sem með yður eru, bæði við fuglana og fénaðinn og öll villidýrin, sem hjá yður eru, allt, sem út gekk úr örkinni, það er öll dýr jarðarinnar.11Minn sáttmála vil ég gjöra við yður: Aldrei framar skal allt hold tortímast af vatnsflóði, og aldrei framar mun flóð koma til að eyða jörðina.12Og Guð sagði: Þetta er merki sáttmálans, sem ég gjöri milli mín og yðar og allra lifandi skepna, sem hjá yður eru, um allar ókomnar aldir:13Boga minn set ég í skýin, að hann sé merki sáttmálans milli mín og jarðarinnar.14Og þegar ég dreg ský saman yfir jörðinni og boginn sést í skýjunum,15þá mun ég minnast sáttmála míns, sem er milli mín og yðar og allra lifandi sálna í öllu holdi, og aldrei framar skal vatnið verða að flóði til að tortíma öllu holdi.16Og boginn skal standa í skýjunum, og ég mun horfa á hann til þess að minnast hins eilífa sáttmála milli Guðs og allra lifandi sálna í öllu holdi, sem er á jörðinni.17Og Guð sagði við Nóa: Þetta er teikn sáttmálans, sem ég hefi gjört milli mín og alls holds, sem er á jörðinni.18Synir Nóa, sem gengu úr örkinni, voru þeir Sem, Kam og Jafet, en Kam var faðir Kanaans.19Þessir eru synir Nóa þrír, og frá þeim byggðist öll jörðin.20Nói gjörðist akuryrkjumaður og plantaði víngarð.21Og hann drakk af víninu og varð drukkinn og lá nakinn í tjaldi sínu.22Og Kam, faðir Kanaans, sá nekt föður síns og sagði báðum bræðrum sínum frá, sem úti voru.23Þá tóku þeir Sem og Jafet skikkjuna og lögðu á herðar sér og gengu aftur á bak og huldu nekt föður síns, en andlit þeirra sneru undan, svo að þeir sáu ekki nekt föður síns.24Er Nói vaknaði af vímunni, varð hann þess áskynja, hvað sonur hans hinn yngri hafði gjört honum.25Þá mælti hann: Bölvaður sé Kanaan, auvirðilegur þræll sé hann bræðra sinna.26Og hann sagði: Lofaður sé Drottinn, Sems Guð, en Kanaan sé þræll þeirra.27Guð gefi Jafet mikið landrými, og hann búi í tjaldbúðum Sems, en Kanaan sé þræll þeirra.28Nói lifði eftir flóðið þrjú hundruð og fimmtíu ár.29Og allir dagar Nóa voru níu hundruð og fimmtíu ár. Þá andaðist hann.

9.1 Verið frjósamir 1Mós 1.28+
9.2 Á yðar vald 1Mós 1.28+
9.4 Ekki neyta blóðs 3Mós 3.17; 7.26; 17.10-14; 5Mós 12.16,23; 15.23; Post 15.20,29
9.6 Hver sem úthellir 3Mós 24.19+ – eftir Guðs mynd 1Mós 1.26
9.9-10 Sáttmála við ykkur 1Mós 6.18+ ; Sír 44.18 – öll dýr merkurinnar Esk 34.25; Hós 2.20; Job 5.23
9.12 Tákn sáttmálans 1Mós 17.11; 4Mós 17.25
9.13 Boga minn Esk 1.28; Sír 43.11-12; 50.7; Opb 4.3
9.15 Flóð Jes 54.9
9.18 Sem, Kam og Jafet 1Mós 5.32+
9.21 Ölvun Okv 23.29-35; Júdt 13.2; Sír 31.25-31; Ef 5.18
9.25 Bölvaður á Kanaan 2Mós 21.17; 3Mós 20.9; 5Mós 27.16
9.26 Kanaan þræll Js 16.10; Dóm 1.28