1Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um Filista, áður en Faraó vann Gasa:2Svo segir Drottinn: Sjá, vatn kemur streymandi úr norðri og verður að á, sem flæðir yfir. Það flóir yfir landið og það, sem í því er, yfir borgir og íbúa þeirra, svo að menn æpa hátt og allir íbúar landsins hljóða3vegna dynsins af hófastappi hesta hans, vegna skröltsins í vögnum hans og glymsins í hjólum hans. Feðurnir líta ekki við til barna sinna af því að hendur þeirra eru orðnar lémagna4vegna dagsins, sem kominn er til að eyða öllum Filistum, til að uppræta fyrir Týrus og Sídon sérhvern hjálparmann sem enn er eftir. Því að Drottinn mun eyða Filistum, leifum Kaftór strandar.5„Gasa er orðin sköllótt, Askalon í eyði lögð; þér leifar Anakíta, hversu lengi ætlið þér að rista á yður skinnsprettur?“6Æ, sverð Drottins, hve lengi ætlar þú að vera hvíldarlaust? Drag þig aftur í slíðrar þínar, still þig og hljóðna!7Hvernig ætti það að hvílast, þar sem Drottinn hefir gefið því skipun? Til Askalon og til strandar hafsins, þangað hefir hann ætlað því för.

47.1 Um Filistea Jer 25.20; Am 1.6+
47.2 Sem flóð Jer 46.7-8; Jes 30.28; Nah 1.8; Slm 124.4-5
47.3 Lémagnast Jer 6.24+
47.4 Kaftór 5Mós 2.23
47.5 Skalli Jer 48.37; Jes 3.24; Am 8.10 – skinnsprettur Jer 16.6; 5Mós 14.1
47.6 Vei! Jer 48.1 – sverð Drottins Jer 46.10; 50.35-38