1Orð Drottins, sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amaríasonar, Hiskíasonar, á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs.2Ég vil gjörsópa öllu burt af jörðunni segir Drottinn.3Ég vil sópa burt mönnum og skepnum, ég vil sópa burt fuglum himinsins og fiskum sjávarins, hneykslunum ásamt hinum óguðlegu, og ég vil afmá mennina af jörðunni segir Drottinn.4Ég mun útrétta hönd mína gegn Júda og gegn öllum Jerúsalembúum og afmá nafn Baals af þessum stað, nafn hofgoðanna ásamt prestunum,5svo og þá er á þökunum falla fram fyrir her himinsins, og þá sem falla fram fyrir Drottni, en sverja um leið við Milkóm,6svo og þá sem gjörst hafa Drottni fráhverfir og eigi leita Drottins né spyrja eftir honum.7Verið hljóðir fyrir Drottni Guði! Því að nálægur er dagur Drottins. Já, Drottinn hefir efnt til fórnar, hann hefir þegar vígt gesti sína.8Á fórnardegi Drottins mun ég vitja höfðingjanna og konungssonanna, svo og allra þeirra, er klæðast útlenskum klæðnaði.9Þann dag vitja ég allra, sem stökkva yfir þröskuldinn, þeirra er fylla hús Drottins síns með ofbeldi og svikum.10Á þeim degi segir Drottinn mun heyrast neyðaróp frá Fiskhliðinu, kveinan úr öðru borgarhverfi og ógurlegt harmakvein frá hæðunum.11Kveinið, þér sem búið í Mortélinu, því að allur kaupmannalýðurinn er eyddur, afmáðir allir þeir, er silfur vega.12Í þann tíma mun ég rannsaka Jerúsalem með skriðljósum og vitja þeirra manna, sem liggja á dreggjum sínum, þeirra er segja í hjarta sínu: Drottinn gjörir hvorki gott né illt.13Þá munu fjármunir þeirra verða að herfangi og hús þeirra að auðn. Þeir munu byggja hús, en ekki búa í þeim, planta víngarða, en ekki drekka vínið, sem úr þeim kemur.14Hinn mikli dagur Drottins er nálægur, hann er nálægur og hraðar sér mjög. Heyr! Dagur Drottins! Beisklega kveinar þá kappinn.15Sá dagur er dagur reiði, dagur neyðar og þrengingar, dagur eyðingar og umturnunar, dagur myrkurs og niðdimmu, dagur skýþykknis og skýsorta,16dagur lúðra og herblásturs gegn víggirtu borgunum og háu múrtindunum.17Þá mun ég hræða mennina, svo að þeir ráfi eins og blindir menn, af því að þeir hafa syndgað gegn Drottni, og blóði þeirra skal úthellt verða sem dufti og innyflum þeirra sem saur.18Hvorki silfur þeirra né gull fær frelsað þá á reiðidegi Drottins, heldur skal allt landið eyðast fyrir eldi vandlætingar hans. Því að tortíming, já bráða eyðing býr hann öllum þeim, sem á jörðunni búa.

1.1 Jósía 2Kon 22.1
1.3 Menn og skepnur Jer 7.20 – fuglar og fiskar Hós 4.3
1.4 Afmá ummerki Baals 2Kon 23.4-5
1.5 Á þökunum 2Kon 23.12 – her himinsins 5Mós 4.19
1.6 Snúið baki við Drottni Jes 1.4; 9.12
1.7 Hljóð fyrir Drottni Hab 2.20; Sak 2.17 – dagur Drottins Sef 1.14; 2.2-3; Hós 1.5+ ; Am 5.18+ – fórn, gestir Opb 19.17-18
1.10 Fiskhlið Neh 3.3 – nýtt borgarhverfi 2Kon 22.14
1.11 Kaupmenn Jes 23.8; Sak 14.21
1.12 ,,Drottinn aðhefst hvorki gott né illt” Jer 5.12; Slm 10.4,11; 14.1; 73.11; 94.7
1.13 Njóta ekki ávaxtanna Am 5.11+
1.14 Dagur Drottins Sef 1.7+ – er nálægur Jl 2.1
1.15 Dagur myrkurs Jl 2.2; Am 5.18,20
1.16 Gegn varðturnunum háu Jes 2.12-16
1.17 Sem blindir menn 5Mós 28.29; Jes 59.10; Job 12.25; Hlj 4.14 – blóði þeirra þyrlað Jer 9.21; Slm 79.2-3
1.18 Silfur og gull Esk 7.19; Okv 11.4 – heift Guðs 2Mós 20.5+ ; Nah 1.2 – heiftarbál 5Mós 4.24; 32.22; Heb 12.29