1Nú er því engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú.2Lögmál lífsins anda hefur í Kristi Jesú frelsað þig frá lögmáli syndarinnar og dauðans.3Það sem lögmálinu var ógerlegt, að því leyti sem það mátti sín einskis fyrir holdinu, það gjörði Guð. Með því að senda sinn eigin son í líkingu syndugs manns gegn syndinni, dæmdi Guð syndina í manninum.4Þannig varð réttlætiskröfu lögmálsins fullnægt hjá oss, sem lifum ekki eftir holdi, heldur eftir anda.5Því að þeir sem láta stjórnast af holdinu, hyggja á það sem holdsins er, en þeir, sem láta stjórnast af andanum, hyggja á það sem andans er.6Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður.7Hyggja holdsins er fjandskapur gegn Guði, með því að hún lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki.8Þeir, sem eru holdsins menn, geta ekki þóknast Guði.9En þér eruð ekki holdsins menn, heldur andans menn, þar sem andi Guðs býr í yður. En hafi einhver ekki anda Krists, þá er sá ekki hans.10Ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en andinn veitir líf vegna réttlætisins.11Ef andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með anda sínum, sem í yður býr.12Þannig erum vér, bræður, í skuld, ekki við holdið að lifa að hætti holdsins.13Því að ef þér lifið að hætti holdsins, munuð þér deyja, en ef þér deyðið með andanum gjörðir líkamans, munuð þér lifa.14Því að allir þeir, sem leiðast af anda Guðs, þeir eru Guðs börn.15En þér hafið ekki fengið anda, sem gjörir yður að þrælum að lifa aftur í hræðslu, heldur hafið þér fengið anda, sem gefur yður barnarétt. Í þeim anda köllum vér: Abba, faðir!16Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.17En ef vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar Guðs, en samarfar Krists, því að vér líðum með honum, til þess að vér einnig verðum vegsamlegir með honum.18Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun opinberast.19Því að sköpunin þráir, að Guðs börn verði opinber.20Sköpunin var undirorpin fallvaltleikanum, ekki sjálfviljug, heldur vegna hans, sem varp henni undir hann,21í von um að jafnvel sjálf sköpunin muni verða leyst úr ánauð forgengileikans til dýrðarfrelsis Guðs barna.22Vér vitum, að öll sköpunin stynur líka og hefur fæðingarhríðir allt til þessa.23En ekki einungis hún, heldur og vér, sem höfum frumgróða andans, jafnvel vér stynjum með sjálfum oss meðan vér bíðum þess, að Guð gefi oss barnarétt og endurleysi líkami vora.24Því að í voninni erum vér hólpnir orðnir. Von, er sést, er ekki von, því að hver vonar það, sem hann sér?25En ef vér vonum það, sem vér sjáum ekki, þá bíðum vér þess með þolinmæði.26Þannig hjálpar og andinn oss í veikleika vorum. Vér vitum ekki, hvers vér eigum að biðja eins og ber, en sjálfur andinn biður fyrir oss með andvörpum, sem ekki verður orðum að komið.27En hann, sem hjörtun rannsakar, veit hver er hyggja andans, að hann biður fyrir heilögum eftir vilja Guðs.28Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs.29Því að þá, sem hann þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd sonar síns, svo að hann sé frumburður meðal margra bræðra.30Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt, en þá sem hann réttlætti, hefur hann einnig vegsamlega gjört.31Hvað eigum vér þá að segja við þessu? Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss?32Hann sem þyrmdi ekki sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með honum?33Hver skyldi ásaka Guðs útvöldu? Guð sýknar.34Hver sakfellir? Kristur Jesús er sá, sem dáinn er. Og meira en það: Hann er upprisinn, hann er við hægri hönd Guðs og hann biður fyrir oss.35Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hungur eða nekt, háski eða sverð?36Það er eins og ritað er: Þín vegna erum vér deyddir allan daginn, erum metnir sem sláturfé.37Nei, í öllu þessu vinnum vér fullan sigur fyrir fulltingi hans, sem elskaði oss.38Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar,39hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum.

8.2 Andinn frelsar 2Kor 3.17; Gal 5.18 – lögmál andans Jer 31.33; Esk 36.27; 37.14
8.3 Í líkingu syndugs manns 2Kor 5.21; Gal 3.13; Heb 2.14-18; 4.15
8.5 Sjálfshyggja og andi Róm 7.23+
8.6 Dauði og líf Róm 6.21-22; 7.5; 8.13
8.9 Guðs andi býr í ykkur 1Kor 3.16
8.11 Lífga dauðlega líkami 1Kor 6.14; 2Kor 4.14
8.15 Hneppt í þrældóm eða börn Gal 4.7 – barn Guðs Gal 4.6; 2Tím 1.7
8.17 Líða, verða vegsamleg Lúk 24.26; 2Kor 4.17; 1Pét 4.13
8.18 Dýrðin mun opinberast Róm 3.23+
8.21 Úr ánauð hverfulleikans 2Pét 3.12-13; Opb 21.1 – frelsi í dýrðinni Jes 55.13; 65.17; Róm 8.23; Kól 1.18-20
8.22 Fæðingarhríðir Jer 13.21; Jes 66.6-8; Jóh 16.21-22
8.23 Frumgróði 1Kor 15.20; Róm 11.16 – andans 2Kor 1.22 – endurlausn líkama okkar 1Kor 15.53-54; 2Kor 5.2-5; Fil 3.20-21
8.26 Heilagur andi biður fyrir okkur Jak 4.5; 1Kor 2.10-13; Róm 8.15
8.29 Mynd sonarins Kól 1.15; Róm 8.16-17; 2Kor 3.18; 1Kor 15.49
8.30 Fyrirhuguð, vegsamleg 2Þess 2.13-14; Ef 1.11-13
8.32 Þyrmdi ekki eigin syni sbr 1Mós 22.16 – framseldi fyrir okkur Róm 5.6-8; Jes 53.6
8.34 Kristur biður fyrir okkur Heb 7.25; 1Jóh 2.1
8.36 Sbr Slm 44.23 – dauði búin allan daginn 1Kor 4.9; 2Kor 4.11