1Minnstu þess, Drottinn, hvað yfir oss hefir gengið, lít þú á og sjá háðung vora.2Arfleifð vor er komin í hendur annarra, hús vor í hendur útlendinga.3Vér erum orðnir munaðarleysingjar, föðurlausir, mæður vorar orðnar sem ekkjur.4Vatnið sem vér drekkum, verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun.5Ofsækjendur vorir sitja á hálsi vorum, þótt vér séum þreyttir, fáum vér enga hvíld.6Til Egyptalands réttum vér út höndina, til Assýríu, til þess að seðjast af mat.7Feður vorir syndguðu, þeir eru eigi framar til, og vér berum misgjörð þeirra.8Þrælar drottna yfir oss, enginn hrífur oss úr höndum þeirra.9Með lífsháska sækjum vér matbjörg vora í eyðimörkinni, þar sem sverðið vofir yfir oss.10Hörund vort er orðið svart eins og ofn af hungurbruna.11Konur hafa þeir svívirt í Síon, meyjar í Júda-borgum.12Höfðingja hengdu þeir, öldungnum sýndu þeir enga virðingu.13Æskumennirnir urðu að þræla við kvörnina, og sveinarnir duttu undir viðarbyrðunum.14Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum.15Fögnuður hjarta vors er þrotinn, gleðidans vor snúinn í sorg.16Kórónan er fallin af höfði voru, vei oss, því að vér höfum syndgað.17Af því er hjarta vort sjúkt orðið, vegna þess eru augu vor döpur,18vegna Síonarfjalls, sem er í eyði og refir nú hlaupa um.19Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, þitt hásæti stendur frá kyni til kyns.20Hví vilt þú gleyma oss eilíflega, yfirgefa oss um langan aldur?21Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum!22Eða hefir þú hafnað oss fyrir fullt og allt, reiðst oss úr öllum máta?

5.1 Minnstu þess Dóm 16.28; 1Sam 1.11; 2Kon 20.3; Slm 89.51; 106.4; 137.7; Lúk 23.42 – lít og sjá Hlj 1.9+ ; Jes 63.15
5.2 Arfleið vor Ób 11; sbr Jes 60.5
5.3 Munaðarlaus Jóh 14.18 – ekkjur Slm 68.6
5.4 Gegn borgun sbr Jes 55.1
5.6 Assýra, Egyptaland Hlj 4.17; Jer 2.18; Hós 12.2
5.7 Syndir feðranna Jer 2.5; 7.25-26 – vér berum þær 2Mós 20.5; Jer 16.10-13; 31.29-30; Esk 18.2; sbr Jes 53.6
5.9 Hætta lífinu 2Sam 23.17; 1Kro 11.19
5.14 Borgarhliðin Rut 4.1,11
5.16 Synd Hlj 1.18+
5.17 Hjartað sjúkt Hlj 1.13,20,22 – döpur augu Hlj 4.14
5.18 Síon Mík 3.12 – í eyði Hlj 1.4,13,16; 3.11; 4.5 – refir hlaupa um Esk 13.4
5.19 Ríkir að eilífu Slm 9.8+ – eilíft hásæti Slm 146.10
5.20 Hví? Jer 14.8-9; Hab 1.13; Slm 10.1; 74.1 – gleyma Jes 49.14; Slm 42.10; 44.25 – yfirgefa Slm 22.2
5.21 Snú oss Jer 31.18 – snúa til Drottins Hlj 3.40+ ; Jes 44.22; Hós 2.9-10
5.22 Hefur þú hafnað oss? Jer 14.19; 33.24-26 – ert oss reiður? Jes 64.8