1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur.2Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.3Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín ég verð eigi valtur á fótum.4Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?5Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. Sela6Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.7Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín ég verð eigi valtur á fótum.8Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.9Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. Sela10Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.11Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.12Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: Hjá Guði er styrkleikur.13Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.

62.2 Sálin hlýtur hvíld Slm 37.7 – hjálpræði mitt Jes 12.2
62.3 Klettur, hjálpræði Slm 89.27; sbr 27.5; 61.4 – vígi Slm 9.10+
62.5 Hræsnisfull blessun Slm 28.3
62.6 Drottinn, von mín Slm 71.5; 1Mós 49.18
62.8 Athvarf Slm 46.2; 71.7; sbr 27.5+
62.9 Treysta Guði Slm 9.11+ ; 55.24+ – úthella hjörtum Slm 42.5; 142.3; 1Sam 1.15
62.10 Mannanna börn Slm 49.3 – hégómi Slm 39.6-7 – á metskálunum Jes 40.15
62.11 Treystið ekki á ofbeldi Jes 30.12 – þótt auðurinn vaxi Job 27.16; 31.25; Matt 19.22; 1Tím 6.17
62.12 Eitt, tvennt Hós 6.2+
62.13 Miskunn Slm 17.7+ – sérhverjum eftir verkum hans Jer 25.14; Job 34.11; Róm 2.6; 2Tm 4.14