1En þessa nótt gat konungur ekki sofið. Bauð hann þá að koma með Annálabókina, og var hún lesin fyrir konungi.2Þá fannst þar skrifað, hversu Mordekai hefði komið upp um þá Bigtan og Teres, tvo geldinga konungs, af þeim er geymdu dyranna, sem höfðu leitast við að leggja hönd á Ahasverus konung.3Þá sagði konungur: Hverja sæmd og upphefð hefir Mordekai hlotið fyrir þetta? Þá sögðu sveinar konungs, þeir er þjónuðu honum: Hann hefir ekkert hlotið fyrir.4Og konungur sagði: Hver er í forgarðinum? Í sama bili hafði Haman komið inn í ytri forgarð konungshallarinnar til þess að tala um það við konung að láta festa Mordekai á gálga þann, er hann hafði reist handa honum.5Og sveinar konungs sögðu við hann: Sjá, Haman stendur í forgarðinum. Konungur mælti: Látið hann koma inn.6En er Haman var inn kominn, sagði konungur við hann: Hvað á að gjöra við þann mann, er konungur vill heiður sýna? Þá hugsaði Haman með sjálfum sér: Hverjum mun konungur vilja heiður sýna öðrum en mér?7Og Haman sagði við konung: Ef konungur vill sýna einhverjum heiður,8þá skal sækja konunglegan skrúða, sem konungur hefir klæðst, og hest, sem konungur hefir riðið, og konungleg kóróna er sett á höfuð hans.9Og skrúðann og hestinn skal fá í hendur einum af höfðingjum konungs, tignarmönnunum, og færa þann mann, sem konungur vill sýna heiður, í skrúðann og láta hann ríða hestinum um borgartorgið og hrópa fyrir honum: Þannig er gjört við þann mann, er konungur vill heiður sýna.10Þá sagði konungur við Haman: Sæk sem skjótast skrúðann og hestinn, svo sem þú hefir sagt, og gjör þannig við Mordekai Gyðing, sem situr hér í konungshliði. Lát ekkert niður falla af öllu því, er þú hefir sagt.11Þá sótti Haman skrúðann og hestinn, færði Mordekai í og lét hann ríða um borgartorgið og hrópaði fyrir honum: Þannig er gjört við þann mann, er konungurinn vill heiður sýna.12Síðan sneri Mordekai aftur í konungshliðið. En Haman skundaði heim til sín, hryggur og með huldu höfði.13Og Haman sagði Seres konu sinni og öllum vinum sínum frá öllu því, er fyrir hann hafði komið. Þá sögðu vitringar hans við hann og Seres kona hans: Ef Mordekai, sem þú ert tekinn að falla fyrir, er af ætt Gyðinga, þá megnar þú ekkert á móti honum, heldur munt þú gjörsamlega falla fyrir honum.14Meðan þeir voru enn við hann að tala, komu geldingar konungs, og fóru þeir í skyndi með Haman til veislunnar, er Ester hafði búið.

6.3 Ekkert hlotið fyrir sbr 1Mós 40.23; Préd 9.15