1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð.2Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, Sela3svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. Sela6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.7Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.8Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

67.2 Blessun 4Mós 6.24-25
67.3 Vegur Guðs Slm 51.15 – meðal allra þjóða Post 28.28; sbr 1Kon 8.43,60
67.4 Lofa þig Slm 99.1-3
67.5 Guð dæmir réttvíslega Slm 98.9+ ; sbr 9.9+
67.7 Ávöxtur, merki um blessun Slm 65.10-14; 85.13 – öll endimörk jarðar Slm 22.28; 33.8; Jes 41.5; Jer 10.7