1Eigi skal myrkur vera í landi því, sem nú er í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og Naftalíland, en síðar meir mun hann varpa frægð yfir leiðina til hafsins, landið hinumegin Jórdanar og Galíleu heiðingjanna.2Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós. Yfir þá, sem búa í landi náttmyrkranna, skín ljós.3Þú eykur stórum fögnuðinn, þú gjörir gleðina mikla. Menn gleðja sig fyrir þínu augliti, eins og þegar menn gleðjast á kornskurðartímanum, eins og menn leika af fögnuði þegar herfangi er skipt.4Því að hið þunga ok hennar, stafinn, sem reið að herðum hennar, brodd rekstrarmannsins, hefir þú í sundur brotið, eins og á degi Midíans.5Öll harkmikil hermannastígvél og allar blóðstokknar skikkjur skulu brenndar og verða eldsmatur.6Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi.7Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í ríki hans. Hann mun reisa það og efla með réttvísi og réttlæti héðan í frá og að eilífu. Vandlæting Drottins allsherjar mun þessu til vegar koma.8Drottinn hefir sent orð gegn Jakob, og því lýstur niður í Ísrael.9Og öll þjóðin skal verða þess áskynja, bæði Efraím og Samaríubúar, sem af metnaði og stærilæti hjartans segja:10Tigulsteinarnir eru hrundir, en vér skulum byggja upp aftur af höggnu grjóti, mórberjatrén eru felld, en vér skulum setja sedrustré í staðinn.11Þess vegna mun Drottinn efla mótstöðumenn Resíns á hendur þeim og vopna óvini þeirra,12Sýrlendinga að austan og Filista að vestan, og þeir skulu svelgja Ísrael með gapandi gini. Allt fyrir það linnti ekki reiði hans, og hönd hans er enn þá útrétt.13En þjóðin sneri sér ekki til hans, sem laust hana, og Drottins allsherjar leituðu þeir ekki.14Þess vegna mun Drottinn höggva höfuð og hala af Ísrael, pálmakvistinn og sefstráið á sama degi.15Öldungarnir og virðingamennirnir eru höfuðið, spámenn þeir, er kenna lygar, eru halinn.16Því að leiðtogar þessa fólks leiða það afleiðis, og þeir, sem láta leiða sig, tortímast.17Fyrir því hefir Drottinn enga gleði af æskumönnum þess og enga meðaumkun með munaðarleysingjum þess og ekkjum, því að allir eru þeir guðleysingjar og illvirkjar, og hver munnur mælir heimsku. Allt fyrir þetta linnti ekki reiði hans, og hönd hans er enn þá útrétt.18Því að hið óguðlega athæfi brennur eins og eldur, eyðir þyrnum og þistlum og kveikir í þykkum skógarrunnum, svo að þeir hvirflast upp í reykjarmökk.19„Vegna reiði Drottins allsherjar stendur landið í björtu báli og fólkið verður sem eldsmatur; enginn þyrmir öðrum.“20Menn rífa í sig til hægri handar og eru þó hungraðir. Þeir eta til vinstri handar og verða þó eigi saddir. Hver etur holdið af sínum eigin armlegg:21Manasse Efraím og Efraím Manasse, og báðir saman ráða þeir á Júda. Allt fyrir þetta linnir ekki reiði hans, og hönd hans er enn þá útrétt.

9.1 Myrkur Jes 8.22-9.1; 42.7; 49.9; 59.9; Slm 107.10,14; Job 10.21-22; 15.22-24; 38.17 – ljós Jes 58.8-10; 60.1,20; Mík 7.8; Slm 27.1+ ; sbr 2Sam 23.3-4; Slm 72.5,17; Lúk 1.78
9.2 Konungi fagnað 1Kon 1.40; 2Kon 11.14; Slm 132.9 – uppskera Slm 4.8
9.3 Ok Jes 10.27; 14.25; 3Mós 26.13; 5Mós 28.48; Jer 27.2-11 – klafinn Jes 14.5-6 – Midían Dóm 7; Jes 10.26; Slm 83.10-12
9.4 Hermannastígvél … brennndar Jes 2.4; Esk 39.9; Hós 2.20; Sak 9.10; Slm 46.10; 76.4
9.5 Barn er oss fætt Jes 7.14; Lúk 2.11 – gefinn Jóh 3.16 – nafn 2Sam 7.9; 1Kon 1.47; sbr Slm 2.6-7; 72.17; 110.4; 2Sam 23.3-4 – ráðgjafi Jes 11.2 – Guðhetja Jes 42.13; 5Mós 10.17; Jer 32.18; Slm 24.8 – eilífðarfaðir 1Sam 24.12; Jes 45.17; 47.7; Slm 21.5,7 – friðarhöfðingi v6; 11.6-9; Mík 5.4; Sak 9.10, Slm 72.3,7
9.6 Höfðingjadómur Jes 2.3-4; Slm 21.5,7 – réttvísi og réttlæti Jes 1.26-27; 5.7; 11.3-5; 16.5; 32.1,16-17; Jer 23.5; 33.15; Slm 89.15; 97.2 – að eilífu 2Sam 7.16; Slm 45.7 – vandlæti, afbrýði Jes 37.32; sbr 26.11; 42.13; 59.17; 63.15; Esk 36.5; 39.25; Jl 2.18; Sak 1.14; 8.2
9.7 Orð Drottins Jes 55.11; Jer 23.29; Hós 6.5; Slm 107.20; 147.15,18
9.8 Stærilæti Jes 2.11-17 – Samaríu 28.1; Am 6.13
9.9 Dramb er falli næst Mal 1.4; sbr Jer 22.14-15; Okv 16.18
9.11 Óvinir hvaðanæva Jes 28.17-18 – samt … Jes 5.25+ – reiði hans Jer 4.8 – hönd hans upp reidd 5Mós 4.34; Slm 136.12; sbr Jes 30.30; Sef 1.4
9.12 Sneri ekki Jer 5.3; Hós 7.10; Am 4.6-11 – leituðu ekki til Drottins Jes 31.1; Sef 1.6
9.13 Höfuð og hali Jes 19.15; sbr 5Mós 28.13,14,44
9.14 Falsspámenn Jes 28.7; 30.10; Jer 14.14; Hlj 2.14
9.15 Leiða afvega Jes 3.12; sbr Jer 14.16
9.16 Munaðarleysingjum og ekkjum Jes 1.17+
9.17 Þyrnar og þistlar Jes 5.6+
9.18 Enginn þyrmir öðrum Jes 3.5; Mík 7.5-6
9.19 Róstur í Ísrael 2Kon 15.16,23-31; Hós 6.7-11; 7.7; 10.3-4; 13.9-11