1Þá söfnuðust allir Ísraelsmenn til Davíðs í Hebron og sögðu: Sjá, vér erum hold þitt og bein!2Þegar um langa hríð, meðan Sál var konungur, hefir þú verið fyrir Ísrael, bæði þegar hann lagði af stað í stríð og þegar hann kom heim. Auk þess hefir Drottinn, Guð þinn, við þig sagt: Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar Ísraels, og þú skalt vera höfðingi yfir þjóð minni Ísrael!3Þá komu allir öldungar Ísraels til konungsins í Hebron, og Davíð gjörði við þá sáttmála í Hebron, frammi fyrir augliti Drottins, og þeir smurðu Davíð til konungs yfir Ísrael eftir orði Drottins fyrir munn Samúels.4Og Davíð og allur Ísrael fór til Jerúsalem, það er Jebús, og þar voru Jebúsítar landsbúar.5Þá sögðu Jebúsbúar við Davíð: Þú munt eigi komast hér inn! En Davíð tók vígið Síon, það er Davíðsborg.6Þá mælti Davíð: Hver sá, er fyrstur vinnur sigur á Jebúsítum, skal verða höfuðsmaður og herforingi! Gekk þá fyrstur upp Jóab Serújuson og varð höfuðsmaður.7Því næst settist Davíð að í víginu, fyrir því nefndu menn það Davíðsborg.8Og hann víggirti borgina allt í kring, frá Milló og alla leið umhverfis, en aðra hluta borgarinnar hressti Jóab við.9Og Davíð efldist meir og meir, og Drottinn allsherjar var með honum.10Þessir eru helstir kappar Davíðs, er öfluglega studdu hann til konungstignar, ásamt öllum Ísrael, til þess að gjöra hann að konungi samkvæmt boði Drottins til Ísraels.11Og þetta er talan á köppum Davíðs: Jasóbeam Hakmóníson, höfðingi þeirra þriggja. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum í einu.12Honum næstur er Eleasar Dódóson, Ahóhíti. Hann var meðal kappanna þriggja.13Hann var með Davíð í Pas Dammím, en Filistar höfðu safnast þar saman til orustu. En þar var akurspilda, alsprottin byggi. En er fólkið flýði fyrir Filistum,14námu þeir staðar í spildunni miðri, náðu henni og unnu sigur á Filistum. Veitti Drottinn þannig mikinn sigur.15Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum þrjátíu til Davíðs í hamrinum, í Adúllamvíginu, en her Filista lá í herbúðum í Refaímdal.16Þá var Davíð í víginu, en varðsveit Filista var þá í Betlehem.17Þá þyrsti Davíð og sagði: Hver vill sækja mér vatn í brunninn í Betlehem, sem er þar við hliðið?18Þá brutust þeir þrír gegnum herbúðir Filista, jusu vatn úr brunninum í Betlehem, sem er þar við hliðið, tóku það og færðu Davíð. En Davíð vildi ekki drekka það, heldur dreypti því Drottni til handa19og mælti: Guð minn láti það vera fjarri mér að gjöra slíkt. Ætti ég að drekka blóð þessara manna, er hættu lífi sínu, því að með því að hætta lífi sínu sóttu þeir það. Og hann vildi ekki drekka það. Þetta gjörðu kapparnir þrír.20Abísaí, bróðir Jóabs, var fyrir þeim þrjátíu. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum og var frægur meðal þeirra þrjátíu.21Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður og var foringi þeirra, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki.22Benaja Jójadason, hraustmenni, frægur fyrir afreksverk sín, var frá Kabseel. Hann drap báða sonu Aríels frá Móab. Hann sté ofan í brunn og drap þar ljón einn dag, er snjóað hafði.23Hann drap og egypskan mann tröllaukinn, fimm álna háan. Egyptinn hafði spjót í hendi, digurt sem vefjarrif, en hann fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.24Þetta gjörði Benaja Jójadason. Hann var frægur meðal kappanna þrjátíu.25Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.26Og hraustu kapparnir voru: Asahel, bróðir Jóabs, Elhanan Dódóson frá Betlehem,27Sammót frá Harór, Heles frá Palon,28Íra Íkkesson frá Tekóa, Abíeser frá Anatót,29Sibbekaí frá Húsa, Ílaí frá Ahó,30Maharaí frá Netófa, Heled Baanason frá Netófa,31Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamíns ættkvísl, Benaja frá Píraton,32Húraí frá Nahale Gaas, Abíel frá Araba,33Asmavet frá Bahúrím, Eljahba frá Saalbón,34Hasem frá Gíson, Jónatan Sageson frá Harar,35Ahíam Sakarsson frá Harar, Elífal Úrsson,36Hefer frá Mekera, Ahía frá Palon,37Hesró frá Karmel, Naaraí Esbaíson,38Jóel, bróðir Natans, Míbhar Hagríson,39Selek Ammóníti, Nahraí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar,40Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,41Úría Hetíti, Sabad Ahlaíson,42Adína Sísason, niðji Rúbens, höfðingi Rúbensniðja, og þrjátíu manns með honum,43Hanan Maakason og Jósafat frá Meten,44Ússía frá Astera, Sama og Jeíel Hótamssynir frá Aróer,45Jedíael Simríson og Jóha Tísíti, bróðir hans,46Elíel frá Mahanaím og Jeríbaí og Jósavja Elnaamssynir og Jítma Móabíti,47Elíel, Óbeð og Jaasíel frá Mesóbaja.

11.1-3 sbr 2Sam 5.1-3
11.4-9 sbr 2Sam 5.6-10
11.10-47 sbr 2Sam 23.8-39