1Ég sagði: Heyrið, þér höfðingjar Jakobs og stjórnendur Ísraels húss! Er það ekki yðar að vita, hvað rétt er?2En þeir hata hið góða og elska hið illa, flá skinnið af mönnum og holdið af beinum þeirra.3Þeir eta hold þjóðar minnar, þeir flá skinnið af þeim og brjóta bein þeirra, hluta þau sundur eins og steik í potti, eins og kjöt á suðupönnu.4Þá munu þeir hrópa til Drottins, en hann mun ekki svara þeim, og hann mun byrgja auglit sitt fyrir þeim, þegar sá tími kemur, af því að þeir hafa ill verk í frammi haft.5Svo mælir Drottinn til spámannanna, sem leitt hafa þjóð mína afvega: Þeir boða hamingju meðan þeir hafa nokkuð tanna milli, en segja þeim stríð á hendur, er ekki stingur neinu upp í þá.6Fyrir því skal sú nótt koma, að þér sjáið engar sýnir, og það myrkur, að þér skuluð engu spá. Sólin skal ganga undir fyrir spámönnunum og dagurinn myrkvast fyrir þeim.7Þeir sem sjá sjónir, skulu þá blygðast sín og spásagnamennirnir fyrirverða sig. Þeir munu allir hylja kamp sinn, því að ekkert svar kemur frá Guði.8Ég þar á móti er fullur af krafti, af anda Drottins, og af rétti og styrkleika, til þess að boða Jakob misgjörð hans og Ísrael synd hans.9Heyrið þetta, þér höfðingjar Jakobs húss og þér stjórnendur Ísraels húss, þér sem hafið viðbjóð á réttvísinni og gjörið allt bogið, sem beint er,10þér sem byggið Síon með manndrápum og Jerúsalem með glæpum.11Höfðingjar hennar dæma fyrir mútur og prestar hennar veita fræðslu fyrir kaup. Spámenn hennar spá fyrir peninga og reiða sig í því efni á Drottin og segja: Er ekki Drottinn vor á meðal? Engin ógæfa kemur yfir oss!12Fyrir því skal Síon plægð verða að akri yðar vegna og Jerúsalem verða að rúst og musterisfjallið að skógarhæðum.

3.1Verðir laganna Hós 5.1; Am 5.7
3.2 Hata hið góða, elska hið illa sbr Am 5.15; Jes 5.20
3.4 Drottinn svarar ekki Jes 1.14-15; 59.2; Jer 11.11; sbr Am 8.12+
3.5 Spámenn villa um Jer 14.13-16; 23.13-22; 27.9-10,16-18; 28.16; 29.8-9,31; Esk 13.2-10 – boða frið Jer 6.14; 14.13; 23.17; 28.8-9; Esk 13.10,16
3.6 Falsspámenn afhjúpaðir Jer 23.12
3.7 Hylja andlit sitt sbr 3Mós 13.45; Esk 24.17,22
3.9 Andstyggð á réttvísinni Am 5.7
3.10 Byggja með blóði Hab 2.12
3.11 Mútuþægni höfðingja Jes 1.23; sbr Esk 13.19 – Drottinn með oss sbr Mík 2.7; Jer 7.4; Hós 6.1-2 – engin ógæfa Jer 5.12
3.12 Sbr Jer 26.18 – rúst Mík 1.6