1Eftir þessa atburði, þá er Ahasverusi konungi var runnin reiðin, minntist hann Vastí og þess, er hún hafði gjört, svo og þess, hver dómur hafði yfir hana gengið.2Þá sögðu menn konungs, þeir er honum þjónuðu: Leiti menn að ungum, fríðum meyjum handa konunginum,3og konungur setji til menn um öll skattlönd ríkis síns, er safni saman öllum ungum, fríðum meyjum til borgarinnar Súsa, í kvennabúrið, undir umsjá Hegaí, geldings konungs, þess er geymir kvennanna, svo að hann annist um hreinsunarundirbúning þeirra.4Og sú stúlka, sem þóknast konungi, verði drottning í stað Vastí. Þetta líkaði konungi vel, og hann gjörði svo.5En í borginni Súsa var Gyðingur nokkur, að nafni Mordekai Jaírsson, Símeísonar, Kíssonar, Benjamíníti,6er fluttur hafði verið frá Jerúsalem með þeim hernumdu, er fluttir voru burt með Jekonja Júdakonungi, þeim er Nebúkadnesar Babel-konungur flutti burt.7Og hann var fósturfaðir Hadassa, það er Esterar, dóttur föðurbróður hans, því að hún var föður- og móðurlaus. Og stúlkan var fagurvaxin og fríð sýnum, og er faðir hennar og móðir önduðust, þá hafði Mordekai tekið hana sér í dóttur stað.8Er boð konungs og tilskipun hans varð kunn og safnað var saman mörgum stúlkum til borgarinnar Súsa undir umsjá Hegaí, þá var og Ester tekin til konungshallarinnar, undir umsjá Hegaí kvennavarðar.9Og stúlkan geðjaðist honum og fann náð fyrir augum hans. Fyrir því flýtti hann sér að fá henni það, er hún þurfti til hreinsunarundirbúnings síns, og þann mat, er henni bar, svo og að fá henni þær sjö þernur úr konungshöllinni, er henni voru ætlaðar. Og hann fór með hana og þernur hennar á besta staðinn í kvennabúrinu.10Ester hafði ekki sagt, hverrar þjóðar hún væri né frá ætt sinni, því að Mordekai hafði boðið henni að segja eigi frá því.11En Mordekai gekk á degi hverjum fyrir framan forgarð kvennabúrsins til þess að vita, hvernig Ester liði og hvað um hana yrði.12Og er röðin kom að hverri stúlku um sig, að hún skyldi ganga inn fyrir Ahasverus konung, eftir tólf mánaða undirbúningsfrest samkvæmt kvennalögunum því að svo langur tími gekk til hreinsunarundirbúnings þeirra: sex mánuðir með myrruolíu og sex mánuðir með ilmsmyrslum og öðru því, er til undirbúnings kvenna heyrir13þegar stúlkan þá gekk inn fyrir konung, var henni fengið allt, er hún bað um, að það færi með henni úr kvennabúrinu til konungshallarinnar.14Um kveldið gekk hún inn, en að morgni sneri hún aftur í hið annað kvennabúr, undir umsjá Saasgasar, geldings konungs, þess er geymdi hjákvennanna. Mátti hún þá eigi framar koma inn fyrir konung, nema ef konungi hefði geðjast vel að henni og hún væri sérstaklega kölluð.15Þegar nú röðin kom að Ester, dóttur Abíhaíls, föðurbróður Mordekai, er hann hafði tekið sér í dóttur stað, að hún skyldi inn ganga fyrir konung, þá bað hún ekki um neitt, nema það sem Hegaí geldingur konungs, kvennavörðurinn, tiltók. Og Ester fann náð í augum allra þeirra, er hana sáu.16Og Ester var tekin inn til Ahasverusar konungs, inn í hina konunglegu höll hans, í tíunda mánuðinum það er tebetmánuður á sjöunda ríkisstjórnarári hans.17Og konungur fékk meiri ást á Ester en öllum öðrum konum, og hún ávann sér náð hans og þokka, meir en allar hinar meyjarnar. Og hann setti hina konunglegu kórónu á höfuð henni og gjörði hana að drottningu í stað Vastí.18Og konungur hélt mikla veislu öllum höfðingjum sínum og þjónum, Esterar-veislu, lét halda hvíldardag í skattlöndunum og gaf gjafir með konunglegu örlæti.19Þá er meyjum var í annað sinn safnað og Mordekai sat í konungshliði20en Ester hafði ekki sagt frá ætt sinni eða hverrar þjóðar hún væri, svo sem Mordekai hafði boðið henni, með því að Ester hlýddi fyrirmælum Mordekai, eins og þegar hún var í fóstri hjá honum21í þann tíma, þá er Mordekai sat í konungshliði, reiddust Bigtan og Teres, tveir geldingar konungs, af þeim er geymdu dyranna, og leituðu eftir að leggja hendur á Ahasverus konung.22Þessa varð Mordekai áskynja og sagði Ester drottningu frá því, en Ester sagði konungi frá í nafni Mordekai.23Og er málið var rannsakað og þetta reyndist satt að vera, þá voru þeir báðir festir á gálga. Og þetta var ritað í árbókina í viðurvist konungs.

2.5 Kís 1Sam 9.1; 1Kro 8.33
2.6 Herleiðing Nebúkadnesar 2Kon 24.10-17; sbr 2Kon 15.29+