1Maðurinn kenndi konu sinnar Evu, og hún varð þunguð og fæddi Kain og mælti: Sveinbarn hefi ég eignast með hjálp Drottins.2Og hún fæddi annað sinn, bróður hans, Abel. Abel varð hjarðmaður, en Kain jarðyrkjumaður.3Og er fram liðu stundir, færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar.4En Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og af feiti þeirra.5Og Drottinn leit með velþóknun til Abels og fórnar hans, en til Kains og fórnar hans leit hann ekki með velþóknun. Þá reiddist Kain ákaflega og varð niðurlútur.6Þá mælti Drottinn til Kains: Hví reiðist þú, og hví ert þú niðurlútur?7Er því ekki þannig farið: Ef þú gjörir rétt, þá getur þú verið upplitsdjarfur, en ef þú gjörir ekki rétt, þá liggur syndin við dyrnar og hefir hug á þér, en þú átt að drottna yfir henni?8Þá sagði Kain við Abel bróður sinn: Göngum út á akurinn! Og er þeir voru á akrinum, réðst Kain á Abel bróður sinn og drap hann.9Þá sagði Drottinn við Kain: Hvar er Abel bróðir þinn? En hann mælti: Það veit ég ekki. Á ég að gæta bróður míns?10Og Drottinn sagði: Hvað hefir þú gjört? Heyr, blóð bróður þíns hrópar til mín af jörðinni!11Og skalt þú nú vera bölvaður og burt rekinn af akurlendinu, sem opnaði munn sinn til að taka á móti blóði bróður þíns af þinni hendi.12Þegar þú yrkir akurlendið, skal það eigi framar gefa þér gróður sinn. Landflótta og flakkandi skalt þú vera á jörðinni.13Og Kain sagði við Drottin: Sekt mín er meiri en svo, að ég fái borið hana!14Sjá, nú rekur þú mig burt af akurlendinu, og ég verð að felast fyrir augliti þínu og vera landflótta og flakkandi á jörðinni, og hver, sem hittir mig, mun drepa mig.15Þá sagði Drottinn við hann: Fyrir því skal hver, sem drepur Kain, sæta sjöfaldri hegningu. Og Drottinn setti Kain merki þess, að enginn, sem hitti hann, skyldi drepa hann.16Þá gekk Kain burt frá augliti Drottins og settist að í landinu Nód fyrir austan Eden.17Kain kenndi konu sinnar, og hún varð þunguð og fæddi Henok. En hann var að byggja borg og nefndi borgina eftir nafni sonar síns Henok.18Og Henoki fæddist Írad, og Írad gat Mehújael, og Mehújael gat Metúsael, og Metúsael gat Lamek.19Lamek tók sér tvær konur. Hét önnur Ada, en hin Silla.20Og Ada ól Jabal. Hann varð ættfaðir þeirra, sem í tjöldum búa og fénað eiga.21En bróðir hans hét Júbal. Hann varð ættfaðir allra þeirra, sem leika á gígjur og hjarðpípur.22Og Silla ól einnig son, Túbal-Kain, sem smíðaði úr kopar og járni alls konar tól. Og systir Túbal-Kains var Naama.23Lamek sagði við konur sínar: Ada og Silla, heyrið orð mín, konur Lameks, gefið gaum ræðu minni! Mann drep ég fyrir hvert mitt sár og ungmenni fyrir hverja þá skeinu, sem ég fæ.24Verði Kains hefnt sjö sinnum, þá skal Lameks hefnt verða sjö og sjötíu sinnum!25Og Adam kenndi enn að nýju konu sinnar, og hún ól son og kallaði hann Set. Því að nú hefir Guð, kvað hún, gefið mér annað afkvæmi í stað Abels, þar eð Kain drap hann.26En Set fæddist og sonur, og nefndi hann nafn hans Enos. Þá hófu menn að ákalla nafn Drottins.

4.4-5 Fórn Heb 11.4
4.8 Kain drepur Abel 1Jóh 3.12; Júd 11
4.10 Blóð Abels hrópar Matt 23.35 og hlst.; Heb 12.24
4.14 Kvíði Kains Job 15.20-24
4.15 Merki 2Mós 12.7,13; Esk 9.4-6; Opb 7.3; 9.4
4.24 Sjö og sjötíu sinnum 1Mós 4.15
4.26 Enos sonur Sets 1Mós 5.6; Lúk 3.38