1Og þeir fluttu örk Guðs inn og settu hana í tjaldið, sem Davíð hafði reisa látið yfir hana, og þeir færðu brennifórnir og heillafórnir.2Og er Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnirnar, blessaði hann lýðinn í nafni Drottins3og úthlutaði öllum Ísraelsmönnum, körlum sem konum, sinn brauðhleifinn hverjum, kjötstykki og rúsínuköku.4Davíð setti menn af levítum til þess að gegna þjónustu frammi fyrir örk Drottins og til þess að tigna, lofa og vegsama Drottin, Guð Ísraels.5Var Asaf helstur þeirra og honum næstur gekk Sakaría, þá Jeíel, Semíramót, Jehíel, Mattitja, Elíab, Benaja, Óbeð Edóm og Jeíel með hljóðfærum, hörpum og gígjum, en Asaf lét skálabumburnar kveða við,6og Benaja og Jehasíel prestar þeyttu stöðugt lúðrana frammi fyrir sáttmálsörk Guðs.7Á þeim degi fól Davíð í fyrsta sinni Asaf og frændum hans að syngja Lofið Drottin.8Lofið Drottin, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!9Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.10Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra, er leita Drottins, gleðjist.11Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífellt eftir augliti hans.12Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,13þér niðjar Ísraels, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.14Hann er Drottinn, Guð vor, um víða veröld ganga dómar hans.15Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,16sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,17þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,18þá er hann mælti: Þér mun ég gefa Kanaanland sem erfðahlut þinn.19Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir, og bjuggu þar sem útlendingar,20og fóru frá einni þjóð til annarrar, og frá einu konungsríki til annars lýðs,21leið hann engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna.22nertið eigi við mínum smurðu, og gjörið eigi spámönnum mínum mein.23Syngið Drottni, öll lönd, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.24Segið frá dýrð hans meðal heiðingjanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra þjóða.25Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, og óttalegur er hann öllum guðum framar.26Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.27Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og fögnuður í bústað hans.28Tjáið Drottni, þér þjóðakynkvíslir, tjáið Drottni vegsemd og vald.29Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið fram fyrir hann. Fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða,30titrið fyrir honum, öll lönd. Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki.31Himinninn gleðjist og jörðin fagni, menn segi meðal heiðingjanna: Drottinn hefir tekið konungdóm!32Hafið drynji og allt, sem í því er, foldin fagni og allt, sem á henni er.33Öll tré skógarins kveði fagnaðarópi fyrir Drottni, því að hann kemur til þess að dæma jörðina.34Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu!35og segið: Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors. Safna þú oss saman og frelsa þú oss frá heiðingjunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, víðfrægja lofstír þinn.36Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð frá eilífð til eilífðar.Og allur lýður sagði: Amen! og Lof sé Drottni!37Og Davíð lét þá Asaf og frændur hans verða þar eftir frammi fyrir sáttmálsörk Drottins til þess að hafa stöðugt þjónustu á hendi frammi fyrir örkinni, eftir því sem á þurfti að halda dag hvern.38En Óbeð Edóm og frændur þeirra, sextíu og átta, Óbeð Edóm Jedítúnsson og Hósa, skipaði hann hliðverði.39Sadók prest og frændur hans, prestana, setti hann frammi fyrir bústað Drottins á hæðinni, sem er í Gíbeon,40til þess stöðugt að færa Drottni brennifórnir á brennifórnaraltarinu, kvelds og morgna, og að fara með öllu svo, sem skrifað er í lögmáli Drottins, því er hann lagði fyrir Ísrael.41Og með þeim voru þeir Heman, Jedútún og aðrir þeir er kjörnir voru, þeir er með nafni voru til þess kvaddir að lofa Drottin, því að miskunn hans varir að eilífu.42Og með þeim voru þeir Heman og Jedútún með lúðra og skálabumbur handa söngmönnunum og hljóðfæri fyrir söng guðsþjónustunnar. En þeir Jedútúnssynir voru hliðverðir.43Síðan fór allur lýðurinn burt, hver heim til sín, en Davíð hvarf aftur til þess að heilsa fólki sínu.

16.4-38 sbr Slm 105.1-15; 106.1,47-48
16.5 Asaf Slm 50.1+ – hljóðfæri levíta Esr 3.10+
16.6 Þeyta lúðra Esr 3.10+
16.8-22 Slm 105.1-15
16.23-33 Slm 96
16.34 Slm 106.1
16.35-36 Slm 106.47-48
16.41 Heman 1Kro 15.17+ – Jedútún Slm 39.1+
16.43 2Sam 6.19-20