1Löngum tíma eftir þetta, þá er Drottinn hafði veitt Ísrael frið fyrir öllum óvinum þeirra hringinn í kring, og Jósúa var orðinn gamall og hniginn að aldri,2þá kallaði Jósúa saman allan Ísrael, öldunga hans og höfðingja, dómendur hans og tilsjónarmenn og sagði við þá: Ég gjörist nú gamall og aldurhniginn.3Þér hafið sjálfir séð allt það, sem Drottinn Guð yðar, hefir gjört öllum þessum þjóðum yðar vegna, því að Drottinn Guð yðar hefir sjálfur barist fyrir yður.4Sjáið, með hlutkesti hefi ég úthlutað yður til handa löndum þessara þjóða, sem enn eru eftir, ættkvíslum yðar til eignar, og löndum þjóðanna, sem ég hefi eytt, allt frá Jórdan til hafsins mikla gegnt sólar setri.5Og Drottinn Guð yðar mun sjálfur reka þá burt frá yður og stökkva þeim undan yður, og þér munuð fá land þeirra til eignar, eins og Drottinn Guð yðar hefir heitið yður.6Reynist nú mjög staðfastir í því að halda og gjöra allt það, sem ritað er í lögmálsbók Móse, án þess að víkja frá því til hægri né vinstri,7svo að þér blandist eigi við þessar þjóðir, sem enn eru eftir hjá yður. Nefnið eigi guði þeirra á nafn, sverjið eigi við þá, þjónið þeim eigi og fallið eigi fram fyrir þeim,8heldur haldið yður fast við Drottin Guð yðar, eins og þér hafið gjört fram á þennan dag.9Fyrir því stökkti Drottinn undan yður miklum og voldugum þjóðum, og enginn hefir getað staðist fyrir yður fram á þennan dag.10Einn yðar elti þúsund, því að Drottinn Guð yðar barðist sjálfur fyrir yður, eins og hann hefir heitið yður.11Gætið þess því vandlega líf yðar liggur við að elska Drottin Guð yðar.12Því ef þér gjörist fráhverfir og samlagið yður leifum þjóða þessara, sem enn eru eftir hjá yður, mægist við þær og blandist við þær, og þær við yður,13þá vitið fyrir víst, að Drottinn Guð yðar mun eigi halda áfram að stökkva þessum þjóðum burt undan yður, heldur munu þær verða yður snara og fótakefli, svipa á síður yðar og þyrnar í augum yðar, uns þér eruð afmáðir úr þessu góða landi, sem Drottinn Guð yðar hefir gefið yður.14Sjá, ég geng nú veg allrar veraldar, en þér skuluð vita af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar, að ekkert hefir brugðist af öllum þeim fyrirheitum, er Drottinn Guð yðar hefir gefið yður. Öll hafa þau rætst, ekkert af þeim hefir brugðist.15En eins og öll þau fyrirheit, sem Drottinn Guð yðar hefir gefið yður, hafa rætst á yður, eins mun Drottinn láta allar hótanir sínar rætast á yður, uns hann hefir gjöreytt yður úr þessu góða landi, sem Drottinn Guð yðar hefir gefið yður.16Ef þér rjúfið sáttmála Drottins Guðs yðar, þann er hann fyrir yður lagði, og farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim, þá mun reiði Drottins upptendrast í gegn yður, og þér munuð fljótt hverfa úr landinu góða, sem hann hefir gefið yður.

23.1 Friður Jós 1.13+ – Jósúa orðinn gamall Jós 13.1
23.2 Öldungar og höfðingjar kallaðir saman Jós 24.1; sbr 8.33
23.3 Þið hafið séð 5Mós 4.34; 7.19; 10.21; 11.2-7; 29.1 – gjörðir Drottins 5Mós 7.18 – barðist fyrir ykkur Jós 10.14+ ; 5Mós 3.22+ ; 7.20-24
23.4 Með hlutkesti Jós 14.1-2; 18.10 – enn land eftir Jós 13.1-2 – þjóða sem ég útrýmdi Jós 12.1,7-8 – hafið mikla Jós 1.4
23.5 Drottinn rekur þá burt 5Mós 6.19; 9.4 – hrekja úr vegi Jós 13.6; 5Mós 4.38+ – Drottinn gefur landið 2Mós 23.27-31; 34.11; 4Mós 33.53; 5Mós 11.23
23.6 Verið einbeittir Jós 1.6,9,18; 1Kor 16.13 – lögbók Móse Jós 1.7; 8.31 – víkið ekki frá 5Mós 5.32+
23.7 Ákallið ekki guði þeirra 2Mós 23.13 – sverjið ekki við þá Jer 5.7 – fallið ekki fram Sef 1.5; 5Mós 8.19; 11.16
23.8 Halda sér fast við Drottin Jós 22.5; 5Mós 10.20+
23.9 Miklar og volduguar þjóðir 5Mós 4.38; 9.1; 11.23
23.10 Ósigrandi 3Mós 26.8; 5Mós 32.30
23.11 Elska Drottin 5Mós 5.10+
23.12 Mægist þeim ekki 2Mós 34.16; 5Mós 7.3
23.13 Tálsnara 2Mós 23.33+ – þyrnir í augum 4Mós 33.55 – þar til ykkur verðir útrýmt 5Mós 4.26; 8.19; 11.17; 28.20
23.14 Veg allrar veraldar 1Kon 2.2 – af öllu hjarta 5Mós 4.29+ – allt ræst Jós 21.45+
23.15 Hótanir Drottins rætast 5Mós 28.15-68
23.16 Sniðganga sáttmála Jós 7.15 – aðrir guðir 2Mós 20.3+ – reiði Drottins 3Mós 10.6+ – þið munuð hverfa 5Mós 4.26+