1Þér óskynsömu Galatar! Hver hefur töfrað yður? Þér hafið þó fengið skýra mynd af Jesú Kristi á krossinum, málaða fyrir augum yðar.2Um þetta eitt vil ég fræðast af yður: Öðluðust þér andann fyrir lögmálsverk eða við að hlýða á fagnaðarerindið og trúa?3Eruð þér svo óskynsamir? Þér sem byrjuðuð í anda, ætlið þér nú að enda í holdi?4Hafið þér til einskis reynt svo mikið? ef það þá er til einskis!5Hvað um það, sá sem veitir yður andann og framkvæmir máttarverk meðal yðar, gjörir hann það vegna lögmálsverka yðar eða vegna þess að þér heyrið og trúið?6Svo var og um Abraham, hann trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað.7Þér sjáið þá, að þeir sem byggja á trúnni, þeir eru einmitt synir Abrahams.8Ritningin sá það fyrir, að Guð mundi réttlæta heiðingjana fyrir trú, og því boðaði hún Abraham fyrirfram þann fagnaðarboðskap: Af þér skulu allar þjóðir blessun hljóta.9Þannig hljóta þeir, sem byggja á trúnni, blessun ásamt hinum trúaða Abraham.10En bölvun hvílir á öllum þeim, sem byggja á lögmálsverkum, því að ritað er: Bölvaður er sá, sem ekki heldur fast við allt það, sem í lögmálsbókinni er ritað, og breytir eftir því.11En það er augljóst að fyrir Guði réttlætist enginn með lögmáli, því að hinn réttláti mun lifa fyrir trú.12En lögmálið spyr ekki um trú. Það segir: Sá, sem breytir eftir boðum þess, mun lifa fyrir þau.13Kristur keypti oss undan bölvun lögmálsins með því að verða bölvun fyrir oss, því að ritað er: Bölvaður er hver sá, sem á tré hangir.14Þannig skyldi heiðingjunum hlotnast blessun Abrahams í Kristi Jesú, og vér öðlast fyrir trúna andann, sem fyrirheitið var.15Bræður, ég tek dæmi úr mannlegu lífi: Enginn ónýtir eða eykur við staðfesta arfleiðsluskrá, enda þótt hún sé aðeins af manni gjörð.16Nú voru fyrirheitin gefin Abraham og afkvæmi hans, þar stendur ekki og afkvæmum, eins og margir ættu í hlut, heldur og afkvæmi þínu, eins og þegar um einn er að ræða, og það er Kristur.17Með þessu vildi ég sagt hafa: Sáttmála, sem áður var staðfestur af Guði, getur lögmálið, sem kom fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, ekki ónýtt, svo að það felli fyrirheitið úr gildi.18Sé því þá svo farið, að arfurinn fáist með lögmáli, þá fæst hann ekki framar með fyrirheiti, en Guð veitti Abraham náð sína með fyrirheiti.19Hvað er þá lögmálið? Vegna afbrotanna var því bætt við, þangað til afkvæmið kæmi, sem fyrirheitið hljóðaði um. Fyrir umsýslan engla er það til orðið, fyrir tilstilli meðalgangara.20En meðalgangara gjörist ekki þörf þar sem einn á í hlut, en Guð er einn.21Er þá lögmálið gegn fyrirheitum Guðs? Fjarri fer því. Ef vér hefðum fengið lögmál, sem veitt gæti líf, þá fengist réttlætið vissulega með lögmáli.22En ritningin segir, að allt sé hneppt undir vald syndarinnar, til þess að fyrirheitið veitist þeim, sem trúa, fyrir trú á Jesú Krist.23Áður en trúin kom, vorum vér í gæslu lögmálsins innilokaðir, þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist.24Þannig hefur lögmálið orðið tyftari vor, þangað til Kristur kom, til þess að vér réttlættumst af trú.25En nú, eftir að trúin er komin, erum vér ekki lengur undir tyftara.26Þér eruð allir Guðs börn fyrir trúna á Krist Jesú.27Allir þér, sem eruð skírðir til samfélags við Krist, þér hafið íklæðst Kristi.28Hér er enginn Gyðingur né grískur, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú.29En ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrirheitinu.

3.1 Kristur á krossinum, kjarni boðunarinnar 1Kor 1.18,23-24; 2.2; Gal 6.14
3.2 Trú og lögmál Gal 2.16+ – öðlast andann Post 11.17; Róm 8.1+; Gal 4.6
3.4 Reynt svo mikið 1Kor 2.12; 12.4-11; 2Kor 12.12
3.6 Abraham trúði 1Mós 15.6; Róm 4.3
3.8 Allar þjóðir … 1Mós 12.3; 18.18; Sír 44.21; Post 3.25
3.9 Niðjar Abrahams, hin trúuðu Róm 4.16; Heb 2.16
3.10 Bölvaður er hver sá … 5Mós 27.26
3.11 Hinn réttláti … Hab 2.4; Róm 1.17; Heb 10.38 – enginn réttlætist með lögmáli Gal 2.16+
3.12 Sá sem breytir … 3Mós 18.5; Róm 10.5
3.13 Bölvaður er hver sá … 5Mós 21.23 – Kristur keypti okkur Róm 5.8+ ; Gal 4.5; Ef 2.4-5 – taka á sig bölvun Róm 8.3; 2Kor 5.21
3.14 Andinn sem fyrirheitið var Róm 5.5+
3.16 Fyrirheitin gefin Abraham Róm 4.13+ – það er Kristur Matt 1.1; Gal 3.28-29
3.19 Hlutverk lögmálsins Róm 4.15+ – englar sáu um Post 7.38,53; Heb 2.2
3.20 Guð er einn 5Mós 6.4; Róm 3.30
3.21 Lögmálið gat ekki frelsað Post 13.38-39; Róm 8.3
3.24 Tyftari Gal 4.2 – þangað til Kristur kom Róm 10.4
3.26 Guðs börn Gal 4.5; Jóh 1.12; Róm 8.15-16
3.27 Íklæðst Kristi Róm 13.14; Ef 4.24; Kól 3.10 – skírð til samfélags við Krist Róm 6.3-4
3.28 Gyðingar og aðrar þjóðir Róm 10.12; 1Kor 12.13; Kól 3.11