1Til söngstjórans. Davíðssálmur.2Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa.3Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki.4Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.5Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald.6Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.7Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.8Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.9Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun.10Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát.11Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur.12Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér.13En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum!14Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti.15Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari!

19.2 Boðskapur himnanna Slm 50.6; 89:6; 96.11; 97.6; sbr Róm 1.20
19.5 Um alla jörðina Róm 10.18
19.5-7 Röðull Sír 43.1-5
19.8 Lögmál Drottins Slm 119 – vitnisburður Drottins sbr Slm 93.5
19.10 Ótti Drottins Slm 111.10; Job 28.28; Okv 1.7; 9.10; 10.27; 14.27; 19.23; Jes 33.6 – hreinn Slm 12.7; Jak 1.27
19.11 Gull Slm 119.127 – sætari en hunang Slm 119.103
19.15 Bjarg Slm 28.1+