Til söngstjórans. Á gittít. Asafs-sálmur.
2Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.3Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.4Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.5Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, boðorð Jakobs Guðs.6Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi:7Ég hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna.8Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. Sela9Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig, ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig!10Enginn annar guð má vera meðal þín, og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.11Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, opna munn þinn, að ég megi seðja þig.12En lýður minn heyrði eigi raust mína, og Ísrael var mér eigi auðsveipur.13Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.14Ó, að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum,15þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.16Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu.17Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum.

81.1 Asaf Slm 50.1+
81.2-4 Lofsöngur og hljóðfærasláttur Slm 47.6-8; 98.4-6; 150.1-5; 2Kro 5.13; sbr Slm 96.1+ ; 147.7+
81.4 Nýtt tungl 2Kon 4.21; Jes 1.13; Hós 2.13; Am 8.5
81.5 Lög um hátíðir 2Mós 23.14
81.7 Byrði Ísraels 2Mós 1.11-14; 5.6-9 – ég frelsaði þig 2Mós 2.24; 3.8; 6.6; sbr Slm 55.23; Matt 11.29-30; 1Pét 5.7
81.8 Neyð og björgun Slm 4.2; 25.17; 34.7+ ; 50.15+ ; 107.6,13,19,28; 118.5; 120.1; Jón 2.3 – í þrumuskýji 2Mós 19.16 – hjá Meríba Slm 95.8+
81.9 Heyr Slm 50.7; 78.1; 5Mós 6.4 – að þú vildir … Slm 95.7
81.10 Engan framandi Guð 2Mós 20.3; Jós 24.23 – tilbiðja 2Mós 20.5
81.11 Ég er Guð þinn Slm 50.7; 2Mós 20.2; Jes 41.10 – út af Egyptalandi 3Mós 11.45; 1Sam 8.8; Jer 2.6; Hós 12.14; Am 2.10
81.12 Hlustaði ekki 5Mós 1.43; Jes 66.4; Jer 7.24,28; 11.10; 13.10-11; 35.16; Sef 3.2
81.13 Sleppti þeim Post 7.42; Róm 1.24; sbr Jer 2.19; 14.16; Esk 18.20; Gal 6.7-8 – forhertum í hjarta Jer 3.17; 7.24; 5Mós 29.18
81.14-15 Ó, að … Slm 18.19; Jes 48.18-19
81.17 Hunang úr klettum 5Mós 32.13; Jes 7.22; sbr Mrk 1.6