1Vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir.2Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir,3kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er,4sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð.5Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum!6Úr hópi þeirra eru mennirnir, sem smeygja sér inn á heimilin og ná á band sitt kvensniftum, sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum.7Þær eru alltaf að reyna að læra, en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum.8Eins og þeir Jannes og Jambres stóðu í gegn Móse, þannig standa og þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni.9En þeim mun ekki verða ágengt, því að heimska þeirra mun verða hverjum manni augljós, eins og líka heimska hinna varð.10Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði,11í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem fyrir mig komu í Antíokkíu, í Íkóníum og í Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég, og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.12Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða.13En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.14En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það.15Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.16Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti,17til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks.

3.1 Á síðustu dögum 1Tím 4.1+
3.2-4 Lestir Róm 1.29-31+
3.5 Yfirskin guðhræðslunnar Matt 7.15,21; Róm 2.20-21; Tít 1.16; sbr 1Tím 4.7-8+
3.6 Smeygja sér inn Tít 1.11
3.7 Þekkja sannleikann 1Tím 2.4+
3.8 Hugspilltir 1Tím 6.5
3.11 Þjáninar Páls í Antíokkíu Post 13.50; – í Íkóníum Post 14.5 – í Lýstru Post 14.19 – Drottinn frelsar Slm 34.20
3.12 Ofsóttir Matt 16.24; Jóh 15.20; Post 14.22
3.14 Af hverjum þú hefur numið 2Tím 1.5; 2.2
3.15 Heilagrar ritningar og sáluhjálp Jóh 5.39
3.16 Innblásin af Guði 2Pét 1.21 – nytsöm til fræðslu Róm 15.4
3.17 Hæfur 2Tím 2.21