1Drottinn talaði við Jósúa á þessa leið:2Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Takið nú til griðastaðina, þá er ég hefi talað um við yður fyrir Móse,3að þangað megi flýja vegandi, sá er af vangá, óviljandi, hefir orðið manni að bana, svo að þeir séu yður hæli fyrir hefnanda.4Hann má flýja í einhverja af borgum þessum og nema staðar rétt fyrir utan borgarhliðið og skýra þar frá máli sínu í áheyrn öldunga borgar þeirrar. Skulu þeir taka við honum inn í borgina og fá honum stað, svo að hann megi búa hjá þeim.5Og ef hefnandinn eltir hann, þá skulu þeir eigi framselja vegandann í hendur honum, þar eð hann óviljandi hefir orðið náunga sínum að bana og eigi verið óvinur hans áður.6Og hann skal hafa aðsetur í borg þeirri, þar til er hann hefir komið fyrir dóm safnaðarins, þar til sá æðsti prestur er dáinn, sem þá er. Þá má vegandinn hverfa aftur og fara heim til sinnar borgar og síns húss, þeirrar borgar, er hann flýði úr.7Þá helguðu þeir Kedes í Galíleu á Naftalífjöllum, Síkem á Efraímfjöllum og Kirjat Arba, það er Hebron, á Júdafjöllum.8En hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó að austan verðu, létu þeir af hendi Beser í eyðimörkinni, á sléttlendinu, af kynkvísl Rúbens, Ramót í Gíleað af kynkvísl Gaðs og Gólan í Basan af kynkvísl Manasse.9Þetta voru borgirnar, sem tilteknar voru handa öllum Ísraelsmönnum og útlendingum þeim, er meðal þeirra dvöldust, að þangað mætti flýja hver sá maður, sem óviljandi hefði orðið manni að bana, svo að hann þyrfti ekki að deyja fyrir hendi hefnandans, þar til er hann hefði staðið fyrir máli sínu frammi fyrir söfnuðinum.

20.1-9 Griðarstaður 5Mós 4.42+
20.3 Morð af vangá 5Mós 4.42; 19.4 – hefna Dóm 8.20+
20.4 Leggja mál sitt fyrir 5Mós 21.19; Rut 4.1-2
20.6 Upgjöf saka 4Mós 35.28
20.7 Kedes í Galíl Jós 19.37; 21.32; 1Kro 6.61 – Síkem Jós 21.21; 1Kro 6.52 – Kirjat Arba, Hebron Jós 14.15; 15.13,54; 21.11,13; 1Kro 6.39-40
20.8 Beser, Ramót og Gólan 5Mós 4.41-43; Jós 21.27,36,38
20.9 Aðkomumenn Jós 8.33; 2Mós 22.20; 23.9; 3Mós 19.10,33-34; 23.22; 5Mós 10.18-19