1Og engli safnaðarins í Sardes skalt þú rita: Þetta segir sá sem hefur þá sjö anda Guðs og stjörnurnar sjö. Ég þekki verkin þín, að þú lifir að nafninu, en ert dauður.2Vakna þú og styrk það sem eftir er og að dauða komið. Því margt hef ég fundið í fari þínu, sem ekki stenst fyrir Guði mínum.3Minnst þú því, hvernig þú tókst á móti og heyrðir, og varðveit það og gjör iðrun. Ef þú vakir ekki, mun ég koma eins og þjófur, og þú munt alls ekki vita, á hverri stundu ég kem yfir þig.4En þú átt fáein nöfn í Sardes, sem ekki hafa saurgað klæði sín, og þeir munu ganga með mér í hvítum klæðum, því að þeir eru maklegir.5Sá er sigrar, hann skal þá skrýðast hvítum klæðum, og eigi mun ég afmá nafn hans úr bók lífsins. Ég mun kannast við nafn hans fyrir föður mínum og fyrir englum hans.6Hver sem eyra hefur, hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.7Og engli safnaðarins í Fíladelfíu skalt þú rita: Þetta segir sá heilagi, sá sanni, sem hefur lykil Davíðs, hann sem lýkur upp, svo að enginn læsir, og læsir, svo að enginn lýkur upp.8Ég þekki verkin þín. Sjá, ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér, sem enginn getur lokað. Þú hefur lítinn mátt, en hefur varðveitt orð mitt og ekki afneitað nafni mínu.9Ég skal láta nokkra af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, ég skal láta þá koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita, að ég elska þig.10Af því að þú hefur varðveitt orðið um þolgæði mitt mun ég og varðveita þig frá reynslustundinni, sem koma mun yfir alla heimsbyggðina, til að reyna þá sem á jörðunni búa.11Ég kem skjótt. Haltu fast því, sem þú hefur, til þess að enginn taki kórónu þína.12Þann er sigrar mun ég gjöra að stólpa í musteri Guðs míns, og hann skal aldrei þaðan út fara. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.13Hver sem eyra hefur, hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.14Og engli safnaðarins í Laódíkeu skalt þú rita: Þetta segir hann, sem er amen, votturinn trúi og sanni, upphaf sköpunar Guðs:15Ég þekki verkin þín, að þú ert hvorki kaldur né heitur. Betur að þú værir kaldur eða heitur.16En af því að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur, mun ég skyrpa þér út af munni mínum.17Þú segir: Ég er ríkur og orðinn auðugur og þarfnast einskis. Og þú veist ekki, að þú ert vesalingur og aumingi og fátækur og blindur og nakinn.18Ég ræð þér, að þú kaupir af mér gull, skírt í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði til að skýla þér með, að eigi komi í ljós vanvirða nektar þinnar, og smyrsl að smyrja með augu þín, til þess að þú verðir sjáandi.19Alla þá, sem ég elska, tyfta ég og aga. Ver því heilhuga og gjör iðrun.20Sjá, ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.21Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu, eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá föður mínum í hásæti hans.22Hver sem eyra hefur, hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.

3.3 Eins og þjófur Matt 24.42-44; Lúk 12.39-40; 1Þess 5.2; 2Pét 3.10; Opb 16.15
3.4 Hvít klæði Dan 7.9; Matt 17.2; 28.3; Mrk 16.5; Jóh 20.12; Opb 3.18; 4.4; 6.11; 7.9,13-14; 19.14
3.5 Bók lífsins 2Mós 32.32-33; Slm 69.29; Dan 12.1; Lúk 10.20; Fil 4.3; Opb 13.8; 17.8; 20.12; 21.27 – kannast við Matt 10.32; Lúk 12.8
3.9 Kasta sér fyrir fætur Jes 45.14; 49.23; 60.14 – ég elska þig Jes 43.4
3.10 Þolgæði Lúk 21.19; 2Tím 2.12; Heb 10.36
3.12 Musteri Guðs Opb 7.15; 11.1 – rita nafn Guðs Opb 14.1; 22.4 – hin nýja Jerúsalem Opb 21.2+
3.14 Upphaf sköpunar Guðs Okv 8.22; SSal 9.1-2; Jóh 1.3; Kól 1.15-18; Heb 1.2
3.19 Aga þá sem ég elska Okv 3.12; 1Kor 11.32; Heb 12.6
3.20 Neyta kvöldverðar með honum Lúk 22.29,30; Jóh 14.23
3.21 Sitja hjá Kristi Matt 19.28; Lúk 22.30; Opb 20.4