1Á þeim degi mun Davíðs húsi og Jerúsalembúum standa opin lind til að þvo af sér syndir og saurugleik.2Á þeim degi segir Drottinn allsherjar mun ég afmá nöfn skurðgoðanna úr landinu, svo að þeirra skal eigi framar minnst verða, og sömuleiðis vil ég reka burt úr landinu spámennina og óhreinleikans anda.3En ef nokkur kemur enn fram sem spámaður, þá munu faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, segja við hann: Þú skalt eigi lífi halda, því að þú hefir talað lygi í nafni Drottins. Og faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, munu leggja hann í gegn, þá er hann kemur fram sem spámaður.4Á þeim degi munu allir spámenn skammast sín fyrir sýnir sínar, þá er þeir eru að spá, og þeir skulu eigi klæðast loðfeldum til þess að blekkja aðra,5heldur mun hver þeirra segja: Ég er enginn spámaður, ég er akurkarl, því á akuryrkju hefi ég lagt stund frá barnæsku.6Og segi einhver við hann: Hvaða ör eru þetta á brjósti þínu? þá mun hann svara: Það er eftir högg, sem ég fékk í húsi ástvina minna.7Hef þig á loft, sverð, gegn hirði mínum og gegn manninum, sem mér er svo nákominn! segir Drottinn allsherjar. Slá þú hirðinn, þá mun hjörðin tvístrast, og ég mun snúa hendi minni til hinna smáu.8Og svo skal fara í gjörvöllu landinu segir Drottinn að tveir hlutir landsfólksins skulu upprættir verða og gefa upp öndina, en þriðjungur þess eftir verða.9En þennan þriðjung læt ég í eld og bræði þá, eins og silfur er brætt, og hreinsa þá eins og gull er hreinsað. Hann mun ákalla nafn mitt, og ég mun bænheyra hann og ég mun segja: Þetta er minn lýður! og hann mun segja: Drottinn, Guð minn!

13.1 Opin lind Sak 14.8; Esk 47.1 – óhreinleiki Jer 2.23; Esk 22.3; 36.25; Hós 5.3; 6.10
13.2 Spámenn reknir burt Mík 5.11-12
13.3 Falsspámenn deyddir 5Mós 18.20; Jer 14.14-15; 23.16-17; 27.14-15; 28.15
13.4 Blygðast sín sbr Mík 3.7
13.7 Hirðir Drottins Sak 11.4-17 – bana hirðinum … Matt 26.31; Mrk 14.27 – jafnt stórir sem smáir Jer 44.12
13.8 Tveir hlutar eyddir sbr Esk 5.1-4 – þriðjungur sbr Jes 4.3+
13.9 Leiða gegnum eldinn Mal 3.2-3 – hreinsa Jes 48.10 – mín þjóð … Guð minn (sáttmálinn) Sak 8.8; Jer 7.23+