1Ég gat ekki, bræður, talað við yður eins og við andlega menn, heldur eins og við holdlega, eins og við ómálga í Kristi.2Mjólk gaf ég yður að drekka, ekki fasta fæðu, því að enn þolduð þér það ekki. Og þér þolið það jafnvel ekki enn,3því að enn þá eruð þér holdlegir menn. Fyrst metingur og þráttan er á meðal yðar, eruð þér þá eigi holdlegir og hegðið yður á manna hátt?4Þegar einn segir: Ég er Páls, en annar: Ég er Apollóss, eruð þér þá ekki eins og hverjir aðrir menn?5Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar, sem hafa leitt yður til trúar, og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig.6Ég gróðursetti, Apollós vökvaði, en Guð gaf vöxtinn.7Þannig er þá hvorki sá neitt, er gróðursetur, né sá, er vökvar, heldur Guð, sem vöxtinn gefur.8Sá, sem gróðursetur, og sá, sem vökvar, eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir sínu erfiði.9Því að samverkamenn Guðs erum vér, og þér eruð Guðs akurlendi, Guðs hús.10Eftir þeirri náð, sem Guð hefur veitt mér, hef ég eins og vitur húsameistari lagt grundvöll, er annar byggir ofan á. En sérhver athugi, hvernig hann byggir.11Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur.12En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm,13þá mun verk hvers um sig verða augljóst. Dagurinn mun leiða það í ljós, af því að hann opinberast með eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er.14Ef nú verk einhvers fær staðist, það er hann byggði ofan á, mun hann taka laun.15Ef verk einhvers brennur upp, mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann frelsaður verða, en þó eins og úr eldi.16Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður?17Ef nokkur eyðir musteri Guðs, mun Guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og þér eruð það musteri.18Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur þykist vitur yðar á meðal í þessum heimi, verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur.19Því að speki þessa heims er heimska hjá Guði. Ritað er: Hann er sá, sem grípur hina vitru í slægð þeirra.20Og aftur: Drottinn þekkir hugsanir vitringanna, að þær eru hégómlegar.21Fyrir því stæri enginn sig af mönnum. Því að allt er yðar,22hvort heldur er Páll, Apollós eða Kefas, heimurinn, líf eða dauði, hið yfirstandandi eða hið komandi, allt er yðar.23En þér eruð Krists og Kristur Guðs.

3.1 Ómálga í Kristi Jóh 16.12 – við menn 1Kor 2.14; 3.3
3.2 Mjólk og föst fæða Heb 5.12-13; sbr 1Pét 2.2
3.3 Metingur og deilur 1Kor 1.10-11; 11.18
3.4 Ég fylgi Páli, ég Apolló 1Kor 1.12
3.5 Apollós Post 18.24+
3.6 Páll gróðursetti Post 18.4,11 – Apollós vökvaði Post 18.24-28
3.9 Samverkamenn Guðs sbr 1Þess 3.2; Mrk 16.20; sbr Jóh 6.28 – Guðs akurlendi Matt 13.3-9 – Guðs hús Ef 2.20
3.10 Eftir þeirri náð 1Kor 15.10; 2Pét 3.15
3.11 Enginn annar gundvöllur Jes 28.16; 1Pét 2.4-6
3.13 Dagurinn … 1Kor 1.8 – með eldi 1Kor 4.5; 2Þess 1.7-10; sbr Jes 1.25; Jer 6.29-30; Mal 3.2-3
3.16 Musteri Guðs 1Kor 6.19; 2Kor 6.16
3.19 Hann er sá … Job 5.13
3.20 Drottinn veit … Slm 94.11
3.22 Apollós Post 18.24+ – Kefas 1Kor 1.12+