1Heyrið orðið, sem Drottinn talar til yðar, Ísraels hús!2Svo segir Drottinn: Venjið yður ekki á sið heiðingjanna og hræðist ekki himintáknin, þótt heiðingjarnir hræðist þau.3Siðir þjóðanna eru hégómi. Menn höggva tré í skógi, og trésmiðurinn lagar það til með öxinni,4hann prýðir það silfri og gulli, hann festir það með nöglum og hömrum, svo að það riði ekki.5Skurðgoðin eru eins og hræða í melónugarði og geta ekki talað, bera verður þau, því að gengið geta þau ekki. Óttist þau því ekki, því að þau geta ekki gjört mein, en þau eru ekki heldur þess umkomin að gjöra gott.6Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns.7Hver skyldi eigi óttast þig, konungur þjóðanna? Já, þú ert þess maklegur, því að meðal allra spekinga þjóðanna og í öllu ríki þeirra er enginn þinn líki.8Allir saman eru þeir óskynsamir og fávísir, þeir þiggja fræðslu hinna fánýtu guða, sem eru úr tré.9Silfurplötur eru fluttar frá Tarsis, og gull frá Úfas, þeir eru verk trésmiðsins og gullsmiðsins. Klæðnaður þeirra er gjörður af bláum og rauðum purpura, verk hagleiksmanna eru þeir allir.10En Drottinn er sannur Guð. Hann er lifandi Guð og eilífur konungur. Fyrir reiði hans nötrar jörðin, og þjóðirnar fá eigi þolað gremi hans.11Þannig skuluð þér mæla til þeirra: Þeir guðir, sem ekki hafa skapað himin og jörð, munu hverfa af jörðinni og undan himninum.12Hann sem gjört hefir jörðina með krafti sínum, skapað heiminn af speki sinni og þanið út himininn af hyggjuviti sínu,13þegar hann þrumar, svarar vatnagnýr í himninum, og hann lætur ský upp stíga frá endimörkum jarðar. Hann gjörir leiftur til þess að búa rás regninu og hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.14Sérhver maður stendur undrandi og skilur þetta ekki, sérhver gullsmiður hlýtur að skammast sín fyrir líkneski sitt, því að hin steyptu líkneski hans eru tál og í þeim er enginn andi.15Hégómi eru þau, háðungar-smíði. Þegar hegningartími þeirra kemur er úti um þau.16En sá Guð, sem er hlutdeild Jakobs, er ekki þeim líkur, heldur er hann skapari alls, og Ísrael er hans eignarkynkvísl. Drottinn allsherjar er nafn hans.17Tak böggul þinn upp af jörðinni, þú sem situr umsetin.18Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég mun burt snara íbúum landsins í þetta sinn og þrengja að þeim til þess að þeir fái að kenna á því.19Vei mér vegna sárs míns, áverki minn er ólæknandi. Og þó hugsaði ég: Ef þetta er öll þjáningin, þá ber ég hana!20Tjald mitt er eyðilagt, öll tjaldstög mín slitin, synir mínir eru frá mér farnir og eru ekki framar til. Enginn er sá til, er reisi aftur tjald mitt og festi aftur upp tjalddúka mína.21Já, óskynsamir voru hirðarnir og Drottins leituðu þeir ekki. Fyrir því lánaðist þeim ekkert, og allri hjörð þeirra var tvístrað.22Heyr! Hávaði! Sjá, það færist nær, ógurlegt hark úr landinu norður frá til þess að gjöra Júdaborgir að auðn, að sjakalabæli.23Ég veit, Drottinn, að örlög mannsins eru ekki á hans valdi, né það heldur á valdi gangandi manns að stýra skrefum sínum.24Refsa oss, Drottinn, en þó í hófi, ekki í reiði þinni, til þess að þú gjörir ekki út af við oss.25Úthell heift þinni yfir heiðnu þjóðirnar, sem ekki þekkja þig, og yfir þær kynkvíslir, sem ekki ákalla nafn þitt, því að þær hafa etið Jakob, já, þær hafa etið hann og svelgt hann upp, og beitiland hans hafa þær eytt.

10.2 Forðist siði heiðingjanna Róm 12.2
10.3 Skurðgoðasmíð Jes 40.19+
10.5 Eins og fuglahræða BJer 69 – mállaus Slm 115.4-7 – gagnslaus Hab 2.18
10.6 Enginn er sem þú Jer 49.19; Jes 40.18+ ; Slm 86.8-10; sbr Róm 16.27
10.7 Óttast Drottin Jer 5.22; Opb 15.4; sbr Slm 15.4+
10.8 Fánýti annarra guða Sak 10.2; SSal 14.22-31 sbr Jer 8.19; 10.15; 14.22; 16.19; 51.18; 5Mós 32.21; 1Kon 16.13,26; Jón 2.9; Slm 31.7; Post 14.15; sbr Jer 2.5
10.10 Lifandi Guð 5Mós 5.26+ – eilífur konungur Mík 4.7; Slm 93.2+ – jörðin skelfur Slm 18.8+ – heift Guðs Nah 1.6
10.11 Falsguðum útrýmt Nah 1.14
10.12 Skapaði jörðina Jer 51.15-19; Jes 44.24+ – með speki sinni Slm 104.24+
10.15 Tími uppgjörsins Jer 8.12+
10.16 Ekki líkur þeim Jer 51.19 – eign hans 5Mós 4.20; sbr Jer 12.7 – nafn hans Jer 46.18+ ; 2Mós 15.3; Am 4.13
10.17 Brottför boðuð Jer 46.19; Esk 12.3
10.19 Ólæknandi sár Jer 14.19; 15.18; 30.12,15; 46.11; 51.9; Mík 1.9
10.21 Hirðar Jer 2.8; 23.1-4; 25.34 – heimskingjar Jer 5.5; sbr 3.15 – hjörð þeirra tvístrað Jer 23.1; 50.6; Jes 53.6+
10.22 Í norðri Jer 1.14+
10.23 Guð stýrir Slm 31.16; Okv 16.1,9; 20.24; Dan 5.23; SSal 7.16
10.24 Aga í hófi Jer 30.11; Slm 6.2; 38.2; 99.8; 118.18; Job 33.19-30; SSal 11.20-12.22 – í hófi 1Mós 33.13; Jes 42.2-3; Okv 25.16-17; 30.7-9; Sír 18.30- 19.3; 31.27-28; Matt 5.5; 11.29-30; Róm 12.3; Tít 3.2; 1Pét 3.1; 5.8; sbr Jer 22.14-15
10.25 Reiði yfir þjóðirnar (óvini) Jer 12.14; Slm 79.6-7; Esk 25; Jl 4.12; Nah 1.2; Sír 36.1-12 – gleypa Jer 8.16; 30.16; Slm 14.4