1Eyðimörkin og hið þurra landið skulu gleðjast, öræfin skulu fagna og blómgast sem lilja.2Þau skulu blómgast ríkulega og fagna af unaði og gleði. Vegsemd Líbanons skal veitast þeim, prýði Karmels og Sarons. Þau skulu fá að sjá vegsemd Drottins og prýði Guðs vors.3Stælið hinar máttvana hendur, styrkið hin skjögrandi kné!4Segið hinum ístöðulausu: Verið hughraustir, óttist eigi! Sjá, hér er Guð yðar! Hefndin kemur, endurgjald frá Guði! Hann kemur sjálfur og frelsar yður.5Þá munu augu hinna blindu upp lúkast og opnast eyru hinna daufu.6Þá mun hinn halti létta sér sem hjörtur og tunga hins mállausa fagna lofsyngjandi, því að vatnslindir spretta upp í eyðimörkinni og lækir á öræfunum.7Sólbrunnar auðnir skulu verða að tjörnum og þurrar lendur að uppsprettum. Þar sem sjakalar höfðust áður við, í bælum þeirra, skal verða gróðrarreitur fyrir sef og reyr.8Þar skal verða braut og vegur. Sú braut skal kallast brautin helga. Enginn sem óhreinn er, skal hana ganga. Hún er fyrir þá eina. Enginn sem hana fer, mun villast, jafnvel ekki fáráðlingar.9Þar skal ekkert ljón vera, og ekkert glefsandi dýr skal þar um fara, eigi hittast þar. En hinir endurleystu skulu ganga þar.10Hinir endurkeyptu Drottins skulu aftur hverfa. Þeir koma með fögnuði til Síonar, og eilíf gleði skal leika yfir höfði þeim. Fögnuður og gleði skal fylgja þeim, en hryggð og andvarpan flýja.

35.1 Eyðimörkin, skrælnað land Jes 41.18-19
35.2 Líbanon, Karmel, Saron Jes 33.9 – vegsemd Guðs vors Jes 40.5; 2Mós 16.10
35.3 Máttvana … styrkið Jes 40.29-30
35.4 Hughreysta þá sem brestur kjark Jes 7.2-4 – hefnd, endurgjald Jes 34.8; 40.10
35.5 Daufir heyra Jes 29.18
35.8 Braut Jes 11.16; 43.19; 49.11 – vegurinn helgi Jes 40.3; 62.10-12 – óhreinn Jes 52.1
35.10 Sbr Jes 51.11 – hinir herleiddu snúa heim Jes 27.13 – fagnaðaróp Jes 30.29; 61.3