1Helgigönguljóð. Sæll er hver sá, er óttast Drottin, er gengur á hans vegum.2Já, afla handa þinna skalt þú njóta, sæll ert þú, vel farnast þér.3Kona þín er sem frjósamur vínviður innst í húsi þínu, synir þínir sem teinungar olíutrésins umhverfis borð þitt.4Sjá, sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður, er óttast Drottin.5Drottinn blessi þig frá Síon, þú munt horfa með unun á hamingju Jerúsalem alla ævidaga þína,6og sjá sonu sona þinna. Friður sé yfir Ísrael!

128.1 Sæll Slm 1.1+ – óttast Drottinn Slm 15.4+ – vegir Drottins Slm 18.22+
128.3 Kona þín Okv 18.22; 19.14 – börn þín Slm 127.3-5; 144.12
128.5 Drottinn blessi þig Slm 134.3 – frá Síon Slm 20.3+
128.6 Friður yfir Ísrael Slm 125.5+