1Líkt er um himnaríki og húsbónda einn, sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn.2Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn.3Síðan gekk hann út um dagmál og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa.4Hann sagði við þá: Farið þér einnig í víngarðinn, og ég mun greiða yður sanngjörn laun.5Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón og gjörði sem fyrr.6Og síðdegis fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: Hví hímið þér hér iðjulausir allan daginn?7Þeir svara: Enginn hefur ráðið oss. Hann segir við þá: Farið þér einnig í víngarðinn.8Þegar kvöld var komið, sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu.9Nú komu þeir, sem ráðnir voru síðdegis, og fengu hver sinn denar.10Þegar þeir fyrstu komu, bjuggust þeir við að fá meira, en fengu sinn denarinn hver.11Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum.12Þeir sögðu: Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund, og þú gjörir þá jafna oss, er höfum borið hita og þunga dagsins.13Hann sagði þá við einn þeirra: Vinur, ekki gjöri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar?14Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér.15Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því, að ég er góðgjarn?16Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.17Jesús hélt nú upp til Jerúsalem, og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá:18Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða19og framselja hann heiðingjum, að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa.20Þá kom til hans móðir þeirra Sebedeussona með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar.21Hann spyr hana: Hvað viltu? Hún segir: Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri.22Jesús svarar: Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég á að drekka? Þeir segja við hann: Það getum við.23Hann segir við þá: Kaleik minn munuð þið drekka. En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið af föður mínum.24Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við bræðurna tvo.25En Jesús kallaði þá til sín og mælti: Þér vitið, að þeir, sem ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu.26En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.27Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé þræll yðar,28eins og Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.29Þegar þeir fóru frá Jeríkó, fylgdi honum mikill mannfjöldi.30Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu, að þar færi Jesús, hrópuðu þeir: Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!31Fólkið hastaði á þá, að þeir þegðu, en þeir hrópuðu því meir: Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!32Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: Hvað viljið þið að ég gjöri fyrir ykkur?33Þeir mæltu: Herra, lát augu okkar opnast.34Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum.

20.1 Verkamenn í víngarði Matt 21.28,33
20.16 Fyrstir – síðastir Matt 19.30; Mrk 10.31; Lúk 13.30
20.17-19 Hlst. Mrk 10.32-34; Lúk 18.31-34
20.18 Sagt fyrir um þjáningar Matt 16.21+
20.19 Á þriðja degi Lúk 24.7,46; 1Kor 15.4
20.20-28 Hlst. Mrk 10.35-45
20.20 Synir Sebedeusar Matt 4.21+ – móðir þeirra Matt 27.56
20.21 Við hlið hans Matt 19.28; Lúk 22.30
20.22 Kaleikur Jer 25.15-29; Matt 26.39 og hlst. Jóh 18.11
20.26 Þjónustan Matt 23.11; Mrk 9.35; 10.43-44; Lúk 9.48; 22.26
20.28 Til að þjóna Fil 2.7 – til lausnargjalds fyrir alla Matt 26.28; Mrk 10.45; 1Tím 2.6
20.29-34 Hlst. Mrk 10.46-52; Lúk 18.35-43
20.30 Tveir blindir Matt 9.27 – sonur Davíðs Matt 1.1
20.33 Blindir fá sýn Jes 61.1-3; Matt 11.5; Jóh 9
20.34 Kenndi í brjósti um Matt 9.36 og hlst. Mrk 9.22; sbr Matt 18.27; Lúk 10.33; 15.20 – snart augu þeirra Matt 9.29-30