1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka,2sá er segir við Drottin: Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar,4hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga,6drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið.7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín.8Þú horfir aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum er endurgoldið.9Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.10Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt.11Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.12Þeir munu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.13Þú skalt stíga ofan á höggorma og nöðrur, troða fótum ljón og dreka.14Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann, ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.16Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt.

91.2 Hæli og háborg sbr Slm 27.1+ ; 62.3,8 – treysta Guði Slm 9.11+ ; 55.24+
91.3 Úr snöru Slm 124.7+ ; sbr 9.16+
91.4 Skýla með fjöðrum 5Mós 32.11; Slm 17.8+
91.11 Býður út englum sínum Matt 4.6
91.13 Ekkert að óttast Job 5.19-22 – troða fótum dreka Lúk 10.19
91.16 Sjá hjálpræði mitt Slm 50.23