1Móse kallaði saman allan Ísrael og sagði við þá:Heyr þú, Ísrael, lög þau og ákvæði, sem ég birti yður í dag. Lærið þau og varðveitið þau, svo að þér haldið þau.2Drottinn Guð vor gjörði við oss sáttmála á Hóreb.3Ekki gjörði Drottinn þennan sáttmála við feður vora, heldur við oss, oss sem hér erum allir lifandi í dag.4Drottinn talaði við yður á fjallinu augliti til auglitis út úr eldinum.5Ég stóð þá á milli Drottins og yðar til þess að flytja yður orð Drottins, því að þér hræddust eldinn og fóruð ekki upp á fjallið. Hann sagði:6Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.7Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.8Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér, engar myndir eftir því, sem er á himnum uppi, eða því, sem er á jörðu niðri, eða því, sem er í vötnunum undir jörðinni.9Þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær, því að ég, Drottinn Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á börnunum, og í þriðja og fjórða lið, þeirra sem mig hata,10en auðsýni miskunn þúsundum, þeirra sem elska mig og varðveita boðorð mín.11Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma.12Gættu þess að halda hvíldardaginn heilagan, eins og Drottinn Guð þinn hefir boðið þér.13Sex daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt verk,14en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða ambátt þín, uxi þinn eða asni eða nokkur skepna, eða útlendingur, sem hjá þér er innan þinna borgarhliða, svo að þræll þinn og ambátt þín geti hvílt sig eins og þú.15Og minnstu þess, að þú varst þræll á Egyptalandi og að Drottinn Guð þinn leiddi þig út þaðan með sterkri hendi og útréttum armlegg. Þess vegna bauð Drottinn Guð þinn þér að halda hvíldardaginn.16Heiðra föður þinn og móður þína, eins og Drottinn Guð þinn hefir boðið þér, svo að þú verðir langlífur og svo að þér vegni vel í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.17Þú skalt ekki morð fremja.18Þú skalt ekki drýgja hór.19Þú skalt ekki stela.20Þú skalt ekki bera falsvitni gegn náunga þínum.21Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, og ekki ágirnast hús náunga þíns, ekki land hans, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi þinn á.22Þessi orð talaði Drottinn með hárri röddu til alls safnaðar yðar á fjallinu út úr eldinum, skýinu og sortanum. Bætti hann þar engu við, og hann ritaði þau á tvær steintöflur og fékk mér þær.23Er þér heyrðuð röddina út úr myrkrinu og fjallið stóð í björtu báli, þá genguð þér til mín, allir höfðingjar ættkvísla yðar og öldungar yðar,24og sögðuð: Sjá, Drottinn Guð vor hefir sýnt oss dýrð sína og mikilleik, og vér heyrðum rödd hans úr eldinum. Vér höfum séð það í dag, að Guð getur talað við mann, og maðurinn þó haldið lífi.25Hví skulum vér þá deyja? því að þessi mikli eldur ætlar að eyða oss. Ef vér höldum áfram að hlusta á raust Drottins Guðs vors, munum vér deyja.26Því að hver er sá af öllu holdi, að hann hafi heyrt rödd hins lifandi Guðs tala út úr eldinum, eins og vér, og þó haldið lífi?27Far þú og hlýð þú á allt það, sem Drottinn Guð vor segir, og seg þú oss allt það, er Drottinn Guð vor talar við þig, svo að vér megum hlýða á það og breyta eftir því.28Drottinn heyrði ummæli yðar, er þér töluðuð við mig, og Drottinn sagði við mig: Ég heyrði ummæli þessa fólks, er þeir töluðu við þig. Er það allt vel mælt, sem þeir sögðu.29Ó, að þeir hefðu slíkt hugarfar, að þeir óttuðust mig og varðveittu allar skipanir mínar alla daga, svo að þeim vegni vel og börnum þeirra um aldur og ævi.30Far þú og seg þeim: Hverfið aftur í tjöld yðar!31En þú, þú skalt standa hér hjá mér meðan ég legg fyrir þig allar þær skipanir, lög og ákvæði, sem þú átt að kenna þeim, svo að þeir breyti eftir þeim í því landi, sem ég gef þeim til eignar.32Gætið því þess að gjöra svo sem Drottinn Guð yðar hefir boðið yður. Víkið eigi frá því, hvorki til hægri né vinstri.33Gangið í öllu þann veg, sem Drottinn Guð yðar hefir boðið yður, svo að þér megið lífi halda og yður vegni vel og þér lifið lengi í landinu, sem þér fáið til eignar.

5.1 Gæta þess að halda 5Mós 5.32; 6.3,25; 8.1; 11.32; 12.1; 13.1; 15.5; 17.10; 23.23; 24.8; 28.1,15,58; 31.12; 32.46; Jós 1.7; 22.5; 2Kon 17.37 – halda af kostgæfni 5Mós 4.6; 7.11; 11.22; 16.12; 17.19; 19.9; 26.16 – heyr Ísrael 5Mós 4.1+
5.2 Sáttmáli á Hóreb 2Mós 19.5-6; 24.1-18
5.4 Augliti til auglitis 5Mós 34.10; 1Mós 32.30; 2Mós 33.11; 4Mós 12.6-8; Sír 45.5
5.5 Meðalganga Móse 5Mós 5.23-30
5.6 Boðorðin tíu 2Mós 20.1+ – ég er Drottinn 2Mós 20.2+ – út úr Egyptalandi 5Mós 6.12,23; 7.19; 16.1; 2Mós 12.17; 13.3; 16.6; 20.2 – þrælahúsið 5Mós 6.12; 7.8; 8.14; 13.6; 2Mós 13.3,14; 20.2; Jós 24.17; Dóm 6.8; Jer 34.13
5.7 Aðrir guðir 2Mós 20.3+
5.8 Líkneskjur 2Mós 20.4+
5.9 Afbrýðisamur Guð 2Mós 20.5+ – í þriðja og fjórða lið, þúsundum 2Mós 20.5-6+
5.10 Elska Guð 5Mós 6.5; 7.9; 10.12; 11.1,13,22; 13.4; 19.9; 30.6,16,20; 2Mós 20.6; Jós 22.5; 23.11; Dóm 5.31; 1Kon 3.3; Slm 31.24; 97.10, Sír 2.15
5.11 Leggja við hégóma 2Mós 20.7+
5.12 Hvíldardagurinn 2Mós 20.8+
5.15 Þræll á Egyptalandi 5Mós 6.21; 15.15; 16.12, 24.18; 2Mós 14.5; 3Mós 26.13 – með sterkri hendi 5Mós 4.34
5.16 Heiðra föður og móður 2Mós 20.12+ – langlífi 5Mós 4.26+ – að þér vegni vel 5Mós 4.40+
5.17 Morð 2Mós 20.13+
5.18 Hór 2Mós 20.14+
5.19 Stela 2Mós 20.15+
5.20 Ljúgvitni 2Mós 20.16+
5.21 Girnast 2Mós 20.17+
5.22 Guð hefir talað 5Mós 4.12+ – myrkur 5Mós 4.11+ – bætti engu við 5Mós 4.2+ – steintöflur 5Mós 4.13+
5.24 Sjá mátt Drottins 5Mós 3.24+ – halda lífi 2Mós 33.20+
5.25 Raust Guðs 5Mós 4.33; 18.16
5.26 Lifandi Guð Jós 3.10; Jer 10.10; 23.36; Hós 1.10; Dan 6.27; Matt 16.16; Post 14.15; 2Kor 3.3
5.27 Meðalganga Móse 2Mós 20.18-21; sbr 1Tím 2.5; Heb 12.24
5.29 Óttast Drottinn 5Mós 4.10+ – að þeim vegni vel 5Mós 4.40+
5.31 Öll fyrirmælin 5Mós 6.25; 8.1; 11.8,22; 15.5; 19.9; 27.1; 31.5
5.32 Gæta þess að breyta 5Mós 5.1+ – víkið ekki frá því 5Mós 17.11,20; 28.14; Jós 1.7; 23.6; 2Kon 22.2
5.33 Vegur Guðs 5Mós 4.1+ – langlífi 5Mós 4.26+