1Etans-maskíl Esraíta.2Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu, kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns,3því að ég hefi sagt: Náð þín er traust að eilífu, á himninum grundvallaðir þú trúfesti þína.4Ég hefi gjört sáttmála við minn útvalda, unnið Davíð þjóni mínum svolátandi eið:5Ég vil staðfesta ætt þína að eilífu, reisa hásæti þitt frá kyni til kyns. Sela6Þá lofuðu himnarnir dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína.7Því að hver er í himninum jafn Drottni, hver er líkur Drottni meðal guðasonanna?8Guð er ægilegur í hópi heilagra, mikill er hann og óttalegur öllum þeim, sem eru umhverfis hann.9Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú? Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín er umhverfis þig.10Þú ræður yfir ofstopa hafsins, þegar öldur þess hefjast, stöðvar þú þær.11Þú knosaðir skrímslið eins og veginn mann, með þínum volduga armi tvístraðir þú óvinum þínum.12Þinn er himinninn, þín er og jörðin, þú hefir grundvallað veröldina og allt sem í henni er.13Þú hefir skapað norðrið og suðrið, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.14Þú hefir máttugan armlegg, hönd þín er sterk, hátt upphafin hægri hönd þín.15Réttlæti og réttvísi er grundvöllur hásætis þíns, miskunn og trúfesti ganga frammi fyrir þér.16Sæll er sá lýður, sem þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi auglitis þíns, Drottinn.17Þeir gleðjast yfir nafni þínu alla daga og fagna yfir réttlæti þínu,18því að þú ert þeirra máttug prýði, og sakir velþóknunar þinnar munt þú hefja horn vort,19því að Drottni heyrir skjöldur vor, konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.20Þá talaðir þú í sýn til dýrkanda þíns og sagðir: Ég hefi sett kórónu á kappa, ég hefi upphafið útvaldan mann af lýðnum.21Ég hefi fundið Davíð þjón minn, smurt hann með minni heilögu olíu.22Hönd mín mun gjöra hann stöðugan og armleggur minn styrkja hann.23Óvinurinn skal eigi ráðast að honum, og ekkert illmenni skal kúga hann,24heldur skal ég gjöra út af við fjendur hans að honum ásjáandi, og hatursmenn hans skal ég ljósta.25Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum, og fyrir sakir nafns míns skal horn hans gnæfa hátt.26Ég legg hönd hans á hafið og hægri hönd hans á fljótin.27Hann mun segja við mig: Þú ert faðir minn, Guð minn og klettur hjálpræðis míns.28Og ég vil gjöra hann að frumgetning, að hinum hæsta meðal konunga jarðarinnar.29Ég vil varðveita miskunn mína við hann að eilífu, og sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.30Ég læt niðja hans haldast við um aldur og hásæti hans meðan himinninn er til.31Ef synir hans hafna lögmáli mínu og ganga eigi eftir boðum mínum,32ef þeir vanhelga lög mín og varðveita eigi boðorð mín,33þá vil ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum,34en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.35Ég vil eigi vanhelga sáttmála minn og eigi breyta því, er mér hefir af vörum liðið.36Ég hefi einu sinni svarið við heilagleik minn og mun aldrei svíkja Davíð:37Niðjar hans skulu haldast við um aldur og hásæti hans sem sólin fyrir mér.38Það skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum. Sela39Og þó hefir þú útskúfað og hafnað og reiðst þínum smurða.40Þú hefir riftað sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt henni til jarðar.41Þú hefir brotið niður alla múrveggi hans og lagt virki hans í eyði.42Allir vegfarendur ræna hann, hann er til háðungar orðinn nágrönnum sínum.43Þú hefir hafið hægri hönd fjenda hans, glatt alla óvini hans.44Þú hefir og látið sverðseggjar hans hörfa undan og eigi látið hann standast í bardaganum.45Þú hefir látið endi á verða vegsemd hans og hrundið hásæti hans til jarðar.46Þú hefir stytt æskudaga hans og hulið hann skömm. Sela47Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín ætíð að brenna sem eldur?48Minnst þú, Drottinn, hvað ævin er, til hvílíks hégóma þú hefir skapað öll mannanna börn.49Hver er sá, er lifi og sjái eigi dauðann, sá er bjargi sálu sinni úr greipum Heljar. Sela50Hvar eru þín fyrri náðarverk, ó Drottinn, þau er þú í trúfesti þinni sórst Davíð?51Minnst, ó Drottinn, háðungar þjóna þinna, að ég verð að bera í skauti smánan margra þjóða,52er óvinir þínir, Drottinn, smána mig með, smána fótspor þíns smurða.53Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.

89.1 Etan 1Kro 15.17-19 – Esraíti Slm 88.1+
89.4-5 Fyrirheit Guðs til Davíðs 2Sam 7.11-17; 2Sam 23.5; Post 2.30
89.6-7 Heilagir, guðasynir Slm 89.7-9; 138.1+
89.7-9 Hver er jafn Drottni? Jes 40.18,25; 46.5
89.10 Drottinn lægir hafið Slm 65.8; 107.29; Job 38.8-11; Mrk 4.41
89.11 Drottinn sigrar hafið Slm 74.13
89.12 Þinn er himininn … Slm 24.1-2
89.13 Tabor Hós 5.1 – Hermnon Slm 42.7+
89.15 Réttlæti og réttvísi Jes 9.6+ – miskunn og trúfesti Slm 85.11+
89.16 Sæll … Slm 1.1+ – ljóma auglits þíns Slm 80.4
89.19 Hinn heilagi í Ísrael Jes 1.4+
89.20 Mann af lýðnum 2Sam 7.8
89.21 Fundið Davíð Post 13.22 – með olíu 1Sam 16.13
89.27 Faðir minn 2Sam 7.14; Slm 2.7 – Guð minn Slm 22.11+ – klettur hjálpræðis míns Slm 18.3+
89.28 Frumburður, hinn æðsti Opb 1.5
89.29 Sáttmáli við Davíð Jer 33.21
89.30 Hásæti Davíðs 2Sam 7.16; Jer 33.26
89.31-33 Ef synir hans … 2Sam 7.14
89.34 Tek ekki frá honum 2Sam 7.15
89.38 Trausta vitni Opb 1.5
89.39 Þú hefur útskúfað Slm 74.1; 77.8; 2Kon 23.27; Jer 7.15,29; 14.19; 33.24; Hlj 3.31; 5.22
89.41 Brotnir varnarmúrar Slm 80.13
89.42 Vegfarendur ræna Slm 80.13-14
89.43 Glatt fjandmenn hans Slm 44.11,14; sbr Lúk 10.19
89.47 Hversu lengi? Slm 6.4+ – reiði þín að loga Slm 79.5
89.48 Sköpuð til fánýtis Slm 39.6; 90.9-10; 103.15-16; Job 10.20-21; 14.1-2; sbr SSal 2.1-5
89.53 Lofaður sé Drottinn … Slm 28.6+