1Þeytið lúðurinn í Síon og æpið óp á mínu heilaga fjalli, svo að allir íbúar landsins nötri. Því að dagur Drottins kemur, já, hann er í nánd,2dagur myrkurs og dimmu, dagur skýþykknis og skýsorta. Eins og sorti breiðist yfir fjallahnjúkana mikil og voldug þjóð. Hennar líki hefir ekki verið frá eilífð, og hennar líki mun ekki koma eftir hana allt fram á ár ókominna alda.3Fyrir henni fer eyðandi eldur og eftir henni logi brennandi. Þótt landið fram undan henni hafi verið eins og Edensgarður, er það á bak henni sem eyðiöræfi. Enginn hlutur komst undan henni.4Ásýndum eru þeir sem hestar að sjá, og þeir eru fráir sem riddarar.5Eins og glamrandi vagnar stökkva þeir yfir fjallahnjúkana, eins og eldslogi, sem snarkar í hálmleggjum, eins og voldug þjóð, sem búin er til bardaga.6Fyrir henni skjálfa þjóðirnar, öll andlit blikna.7Þeir hlaupa sem hetjur, stíga upp á borgarvegginn sem hermenn, sérhver þeirra gengur sína leið og enginn riðlast á annars braut.8Enginn þeirra þrengir öðrum, hver gengur sína braut, jafnvel mót skotspjótum þeytast þeir áfram án þess að stöðva ferð sína.9Þeir ráðast inn í borgina, hlaupa á borgarvegginn, stíga upp í húsin, fara inn um gluggana sem þjófar.10Fyrir henni nötrar jörðin, himnarnir skjálfa, sól og tungl myrkvast og stjörnurnar missa birtu sína.11Og Drottinn lætur raust sína þruma fyrir öndverðu liði sínu. Því að herlið hans er afar mikið, því að voldugur er sá, sem framkvæmir hans boð. Já, mikill er dagur Drottins og mjög ógurlegur, hver getur afborið hann?12En snúið yður nú til mín _ segir Drottinn _ af öllu hjarta, með föstum, gráti og kveini.13Sundurrífið hjörtu yðar en ekki klæði yðar, og hverfið aftur til Drottins Guðs yðar, því að hann er líknsamur og miskunnsamur, þolinmóður og gæskuríkur og iðrast hins illa.14Hver veit nema hann iðrist aftur og láti blessun eftir sig: matfórn og dreypifórn handa Drottni, Guði yðar!15Þeytið lúðurinn í Síon, stofnið til helgrar föstu, boðið hátíðarstefnu.16Kveðjið saman lýðinn, helgið söfnuðinn, stefnið saman gamalmennum, safnið saman börnum og brjóstmylkingum. Brúðguminn gangi út úr herbergi sínu og brúðurin út úr brúðarsal sínum.17Milli forsals og altaris skulu prestarnir, þjónar Drottins, gráta og segja: Þyrm þjóð þinni, Drottinn, og lát eigi arfleifð þína verða að spotti, svo að heiðingjarnir drottni yfir þeim. Hví skulu menn segja meðal þjóðanna: Hvar er Guð þeirra?18Þá varð Drottinn fullur umhyggju vegna lands síns, og hann þyrmdi lýð sínum.19Drottinn tók til máls og sagði við lýð sinn: Sjá, ég sendi yður korn, vínberjalög og olíu, svo að yður skal nægja til saðnings. Og ég vil eigi láta yður verða framar að spotti meðal heiðingjanna.20Og óvininn, sem frá norðri kemur, mun ég reka langt burt frá yður og stökkva honum út á auðnir og öræfi. Skal fararbroddur hans lenda í austurhafinu og halaflokkurinn í vesturhafinu, þar skal fýla og illur daunn upp af honum stíga, því að hann hefir unnið stórvirki.21Óttast eigi, land! Fagna og gleðst, því að Drottinn hefir unnið stórvirki.22Óttist eigi, þér dýr merkurinnar, því að grashagar eyðimerkurinnar grænka, því að trén bera ávöxt, fíkjutrén og víntrén gefa sinn gróða.23Og þér Síonbúar, fagnið og gleðjist í Drottni, Guði yðar, því að hann gefur yður regn í réttum mæli og lætur skúrirnar ofan til yðar koma, haustregn og vorregn, eins og áður.24Láfarnir verða fullir af korni, og vínberjalögurinn og olían flóa út af þrónum.25Ég bæti yður upp árin, er átvargurinn, flysjarinn, jarðvargurinn og nagarinn átu, _ minn mikli her, er ég sendi móti yður.26Þér skuluð eta og mettir verða og vegsama nafn Drottins, Guðs yðar, sem dásamlega hefir við yður gjört, og þjóð mín skal aldrei að eilífu til skammar verða.27Og þér skuluð viðurkenna, að ég er meðal Ísraels og að ég er Drottinn, yðar Guð, og enginn annar. Og þjóð mín skal aldrei að eilífu til skammar verða.

2.1 Heimsbyggðin skjálfi 2Mós 19.16-20; Hab 3.7-12; Slm 18.8-16 – dagur Drottins Jl 1.15+
2.2 Dagur myrkurs Am 5.18; Mrk 13.4-25
2.3 Eldur Jl 1.19+ – Edensgarður 1Mós 2.8-15; Jes 51.3; Esk 36.35
2.4-5 Áþekkir hestum Opb 9.7-9
2.10 Sól myrkvast Jl 3.4; 4.15; Jes 13.10; Am 8.9
2.11 Raust Drottins Jes 30.30, 33.3; Slm 18.14; 29.3-5; 46.7; Heb 12.26 – dagur Dottins Jl 1.15+
2.12 Snúa sér til Guðs Hós 6.1+ ; 11.5+ – af öllu hjarta 5Mós 4.29; 6.5; 30.10; 1Sam 7.3; 1Kon 8.48; 2Kro 15.12; Jer 29.13; Slm 119.2 – fasta Jl 1.14+
2.13 Rífa klæði sín 1Mós 37.29; ; 2Sam 13.19; 2Kon 22.11; Matt 26.65; Post 14.14 – líknsamur og miskunnsamur 2Mós 34.6+
2.14 Hver veit? 2Sam 12.22; Jón 3.9; sbr Am 7.3+ – blessun Jl 2.19-27; 5Mós 7.13-15; 28.1-14
2.15 Þeyta hornið Dóm 3.27; 6.34; 1Sam 13.3-4; 2Sam 2.28; Jer 6.1; Esk 33.3; Hós 5.8; Am 3.6; Opb 8.6-7 – fasta Jl 1.14+
2.17 Milli fordyris og altaris Esk 8.16, sbr Matt 23.35; Lúk 11.51 – hví … ? 2Mós 32.11-12 – hvar er Guð þeirra? Mík 7.10; Slm 42.4,11; 79.10; 115.2
2.18 Umhyggja Drottins Sak 1.14; 8.2
2.19 Korn, vínlögur, olía Jl l.10+
2.20 Í norðri Jer 1.14-15; 4.6; 6.1; sbr Esk 26.7
2.23 Regn Hós 6.3+
2.25 Smávargurinn, flysjarinn o.s.frv. Jl 1.4+
2.27 Vita Jl 4.17; 2Mós 16.12; Esk 2.5, 6.7,10,13,14 o.áfr.; 7.9; 39.22 – ég er Drottinn 2Mós 6.2; 7.5; Jes 42.8; Hós 12.10+ ; Mal 3.6 – enginn annar Jes 42.8+ ; sbr Hós 13.4+