1Efraímsmönnum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: Hví hefir þú farið að berjast við Ammóníta og eigi kvatt oss þér til fylgdar? Nú munum vér leggja eld í hús þitt yfir þér.2Þá sagði Jefta við þá: Ég og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta. Beiddist ég þá liðs hjá yður, en þér hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra.3Og er ég sá, að þér ætluðuð ekki að hjálpa mér, þá lagði ég líf mitt í hættu og fór í móti Ammónítum, og Drottinn gaf þá í hendur mér. Hvers vegna komið þér þá í dag til mín til þess að berjast við mig?4Og Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta, og unnu Gíleaðsmenn sigur á Efraímítum, því að Efraímítar höfðu sagt: Þér eruð flóttamenn frá Efraím! Gíleað liggur mitt í Efraím, mitt í Manasse.5Gíleaðítar settust um Jórdanvöðin yfir til Efraím. Og þegar flóttamaður úr Efraím sagði: Leyf mér yfir um! þá sögðu Gíleaðsmenn við hann: Ert þú Efraímíti? Ef hann svaraði: Nei!6þá sögðu þeir við hann: Segðu Sjibbólet. Ef hann þá sagði: Sibbólet, og gætti þess eigi að bera það rétt fram, þá gripu þeir hann og drápu hann við Jórdanvöðin. Féllu þá í það mund af Efraím fjörutíu og tvær þúsundir.7Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta Gíleaðíti og var grafinn í einni af Gíleaðs borgum.8Eftir Jefta var Íbsan frá Betlehem dómari í Ísrael.9Hann átti þrjátíu sonu, og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér, og þrjátíu konur færði hann sonum sínum annars staðar að. Hann var dómari í Ísrael í sjö ár.10Síðan andaðist Íbsan og var grafinn í Betlehem.11Eftir hann var Elón Sebúloníti dómari í Ísrael. Hann var dómari í Ísrael í tíu ár.12Síðan andaðist Elón Sebúloníti og var grafinn í Ajalon í Sebúlon-landi.13Eftir hann var Abdón Híllelsson Píratóníti dómari í Ísrael.14Hann átti fjörutíu sonu og þrjátíu sonasonu, sem riðu sjötíu ösnufolum. Hann var dómari í Ísrael í átta ár.15Síðan andaðist Abdón Híllelsson Píratóníti og var grafinn í Píratón í Efraímlandi á Amalekítafjöllum.

12.1 Þræta við Efraímíta Dóm 8.1-3
12.5 Sest um vöðin Dóm 3.28; 7.24
12.9 Þjrátíu synir Dóm 10.4; 12.14
12.12 Elón sbr 1Mós 46.14; 4Mós 26.26
12.13 Píratón 1Makk 9.50
12.14 Fjörutíu synir sbr v.9
12.15 Fjöll Amalekíta Dóm 5.14